Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu í dag. Þar segir að frá fimm í morgun til fimm í dag hafi 121 mál verið skráð í kerfi lögreglunnar og þrír gistu í fangageymslu nú undir kvöld.
Lögregluþjónar frá lögreglustöð 1, sem sér um Austurbæ, miðbæinn, Vesturbæ og Seltjarnarnes, voru kallaðir til vegna manns sem lét illum látum á hóteli. Hann var víst í annarlegu ástandi og öskrandi á fólk fyrir utan hótelið. Þá fór hann inn í anddyri og sló í skjá og borðsíma.
Maðurinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð og fundust þar fíkniefni í fórum hans.
Til lögreglustöðvar 2 (Hafnarfjörður, Garðabær og Álftanes) barst í dag tilkynning um innbrot í iðnaðarhverfi. Þar var búið að stela verkfærum og öðru og var reynt að gera eftirlitsmyndavélar óvirkar. Þjófnaðurinn er í rannsókn.