Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingkona Vinstri grænna, svarar Sverri Helgasyni fullum hálsi í nýrri Facebook-færslu. „Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum,“ skrifar hún samkvæmt Mannlífi, sem greindi frá færslunni í morgun.
Forsaga málsins er sú að Jódís skrifaði á Facebook 2. nóvember um reiðina sem hún mætti vegna útlendingamála og sagðist hafa fengið líflátshótanir á þingmannsárunum, að mestu frá fólki vinstra megin og á miðjunni. Sverrir tók færsluna fyrir í streymi sínu og gerði líflátshótanirnar að aðalatriði, eins og Nútíminn greindi frá.
Sverrir segist í samtali við Nútímann ekki ætla að kveinka sér: „Mönnum má finnast ég vera vondur og það skiptir mig engu máli.“
Líkir málflutningnum við umræðu um kynferðisofbeldi
Í svari sínu, sem Mannlíf endursegir, sakar Jódís Sverri um að gera hægrimenn og stefnu þeirra í útlendingamálum að fórnarlömbum umræðunnar. Hún líkir þessu við það þegar umræða um kynferðisofbeldi er afvegaleidd með því að draga fram einstök dæmi um konur sem beitt hafi ofbeldi, þótt mikill meirihluti gerenda í nauðgunarmálum sé karlkyns.
Hún segir sama mynstur birtast í útlendingamálum, þar sem brot einstakra útlendinga séu notuð til að halda því fram að „vondu múslimarnir“ séu hættulegir. Íslendingar séu þó enn í meirihluta þeirra sem komi fyrir dómstóla vegna afbrota.
„Hér erum við að tala um stefnu hægrisinna sem byggir á skilvirkni og oft mannvonsku. Stefnu sem byggir á sundrungu og rasisma og elur á ótta og aðgreiningu,“ skrifar Jódís. Hún segir þá stefnu hafa birst í sinni ljótustu mynd í fangabúðum, þjóðarmorðum og útrýmingu.
Jódís segir það þversögn að samkvæmt málflutningi Sverris séu hægrimenn, sem vilji brottvísa fólki í stórum stíl, orðnir „góðu gæjarnir“ en vinstrifólk sem berjist fyrir mannréttindum orðið „vonda fólkið“. Hún tekur þó skýrt fram að líflátshótanir og hótanir um ofbeldi séu aldrei í lagi, hvaðan sem þær komi.
Færslunni lýkur hún á þessum orðum: „Það er verra að brjóta mannréttindi fólks á flótta en að öskra á einhverja forréttinda þingkonu eins og ég sannarlega var.“
Sverrir: „Ég segi bara það sem ég tel vera rétt“
Sverrir hafnar því í samtali við Nútímann að hann geri sjálfan sig að fórnarlambi. „Ég er ekkert að gera sjálfan mig að fórnarlambi umræðunnar. Ég er að benda á orð hennar í hennar eigin færslu sem bendir til þess að hún sjálf sé fórnarlamb umræðunnar þegar hún fær líflátshótanir frá eigin stuðningsmönnum, eins og hún sjálf lýsir,“ segir hann.
Hann tekur undir að Íslendingar fremji flesta glæpi hér á landi. „Að sjálfsögðu eru Íslendingar þeir sem fremja flesta glæpi hér, þar sem þeir eru enn sem komið er langstærsti hópurinn hérna. En ef reiknað er hlutfallslega þá eru ákveðnir hópar útlendinga sem fremja glæpi margfalt á við Íslendinga,“ segir Sverrir. „Minni á að útlendingar eru um 70% á Litla-Hrauni.“
Samkvæmt svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur voru erlendir ríkisborgarar 57 prósent fanga í íslenskum fangelsum, að gæsluvarðhaldsföngum meðtöldum, árið 2024, en 26 prósent árið 2020.
Sverrir segist ekki sækjast eftir því að vera vinsæll. „Annars hef ég enga þörf fyrir það að vera góði gæinn í umræðunni. Mönnum má finnast ég vera vondur og það skiptir mig engu máli. Ég segi bara það sem ég tel vera rétt og ef menn meta það að ég sé vondur út frá því þá verður bara að hafa það. Ég held þá í það minnsta á eigin sverði.“