Forseti Paragvæ, Santiago Pena, hefur tilkynnt að hann segi af sér. Þetta gerir hann eftir að seðlabanki landsins tók stærsta banka landsins yfir. Um helmingur íbúa landsins, þrjár milljónir manna, eru í viðskiptum við bankann og yfirtakan varð til þess að fólk missti aðgang að inneignum sínum í bankanum.
Pena átti lengi hlutabréf í móðurfélagi bankans en seldi þau í fyrra.
Stjórnarandstæðingar lögðu fram á þingi í dag beiðni um að Pena yrði ákærður til embættismissis. Flokkur hans, sem er með meirihluta á þingi, hafði lýst yfir stuðningi við þá tillögu. Pena sagði í yfirlýsingu á X að það hefði aldrei verið ætlun sín að bregðast því trausti sem þjóðin hefði sett á sig og baðst afsökunar ef honum hefði mistekist að einhverju leyti.