Breski grínistinn Russell Brand var sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisofbeldi fyrir dómi í dag. Réttarhöld yfir honum hafa staðið síðan 12. október.
Brand er 51 árs og öðlaðist frægð fyrir framkomu sína í útvarpi, sjónvarpi og síðar kvikmyndum. Hann var sakaður um nauðgun og kynferðisofbeldi gegn sex konum, á tíu ára tímabili. Ákæran var í sjö liðum en hann neitaði alfarið sök.
Brand var sakfelldur í fjórum ákæruliðum, fyrir að nauðga ungri konu eftir uppistandssýningu í vesturhluta Lundúna, árið 2009, og í þremur ákæruliðum fyrir kynferðisofbeldi.
Við réttarhöldin lýsti saksóknari Brand sem kynferðisafbrotamanni sem hefði haft óseðjandi þörf fyrir kynferðisleg samskipti án tillits til aðstæðna eða við hvern hann ætti í samskiptum.
Þolendur lýstu sínum samskiptum við Brand fyrir dómi og hann gaf sjálfur skýrslu fyrir dómi 28. október.
Þá sagði hann kviðdómnum að ásakanir á hendur sér hefðu verið þungbærar og haft mikil áhrif á líf sitt. Hann lagði áherslu á að samþykki væri grundvallarforsenda kynferðislegra samskipta.
Verjandi Brand sagði við lok réttarhaldanna að engin sönnunargögn bentu til þess að hann væri siðblindur maður sem nauðgaði fólki og teldi það eðlilegt.
Dómarinn sagði í dag að Brand mætti búast við fangelsisdómi. Hann verður kveðinn upp á mánudag.
„Þú hefur verið sakfelldur fyrir nokkur brot, þar á meðal nauðgun. Afleiðing þess er óhjákvæmilega fangelsisrefsing. Það er mitt mat að ég verði því að úrskurða þig í gæsluvarðhald þar til refsing verður ákveðin,“ sagði Joel Bennathan, dómari.
Fréttamaður BBC sem fylgdist með í dómsal sagði Brand ekki hafa sýnt neinar tilfinningar þegar dómurinn var kveðinn upp. Eiginkona hans var í salnum.
Þegar hann var leiddur í burtu í varðhald sást hann segja „ég er í lagi, ég er í lagi,“ við verjendur sína.
Brand er einnig til rannsóknar vegna frekari ásakana tveggja kvenna um nauðgun.