Í ákæru á hendur manninum, sem þingfest var fyrir luktum dyrum í Héraðsdómi Reykjaness í morgun, segir að maðurinn hafi að kvöldi fimmtudags í júlí árið 2024, í bíl sem hann hafði lagt í stæði á ótilgreindum stað, án samþykkis og með ofbeldi og ólögmætri nauðung haft önnur kynferðismök við konuna.
Hann hafi sleikt og sogið brjóst konunnar, rifið í hár hennar og tekið um höfuð hennar og þvingað getnaðarlim sínum inn í munn hennar og þröngvað hana til að hafa við hann munnmök.
Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar og konan krefur hann um fjögurra milljóna króna miskabætur.