Þetta kemur fram í greiningu velferðarsviðs sem kynnt var í velferðarráði í gær.
Úkraínskir ríkisborgarar voru fjölmennastir meðal erlendra ríkisborgara sem fengu framfærsluaðstoð, alls 766 manns. Þar á eftir komu 168 með palestínskt ríkisfang, 146 með venesúelskt og 115 með pólskt. Aðrir erlendir ríkisborgarar voru samtals 443.
Sundurliðunin eftir einstökum ríkisföngum miðast við skráningu í þjóðskrá árið 2026, þótt greiðslurnar séu frá 2025. Önnur ríkisföng eru ekki talin upp hvert fyrir sig í kynningunni.
Alls 3.408 fengu fjárhagsaðstoð
Í sérstöku svari velferðarsviðs við fyrirspurn Miðflokksins er fjallað um alla fjárhagsaðstoð. Þar eru einnig taldar aðrar greiðslur en framfærslustyrkir, meðal annars aðstoð vegna barna og náms.
Samkvæmt því fengu 3.408 einstaklingar fjárhagsaðstoð árið 2025. Erlendir ríkisborgarar voru 55,7 prósent þeirra en íslenskir 44,3 prósent.
Íslenskir ríkisborgarar voru 1.509 og nam kostnaður vegna aðstoðar við þá 1.401,9 milljónum króna. Úkraínskir ríkisborgarar voru 790, eða 23,2 prósent notenda, og kostnaðurinn 709,3 milljónir. Palestínskir ríkisborgarar voru 206, eða sex prósent, og kostnaður vegna aðstoðar við þá 258,2 milljónir.
Venesúelskir ríkisborgarar voru 187, eða 5,5 prósent, og kostnaðurinn 183,2 milljónir króna. Pólskir ríkisborgarar voru 134, eða 3,9 prósent, og kostnaðurinn 119,3 milljónir. Afganskir ríkisborgarar voru 71, eða 2,1 prósent, og kostnaðurinn 92,9 milljónir.
Litáískir ríkisborgarar voru 59, eða 1,7 prósent, og kostnaðurinn 63,1 milljón króna. Rúmenskir ríkisborgarar voru 55, eða 1,6 prósent, og kostnaðurinn 54 milljónir. Sýrlenskir ríkisborgarar voru 46, eða 1,3 prósent, og kostnaðurinn 58,4 milljónir. Íraskir ríkisborgarar voru 36, eða 1,1 prósent, og kostnaðurinn 46,8 milljónir.
Borgin birtir aðeins ríkisföng sem voru yfir einu prósenti af heildarfjölda notenda. Til viðbótar voru 315 einstaklingar sem eru ekki sundurliðaðir eftir ríkisfangi í svarinu.
Útgjöld lækkuðu um 669 milljónir
Heildarútgjöld vegna fjárhagsaðstoðar námu 3.429 milljónum króna í fyrra, samanborið við 4.098 milljónir árið 2024. Þau lækkuðu um 669 milljónir, eða 16,3 prósent.
Eftir endurgreiðslur ríkisins var kostnaður borgarinnar 2.321 milljón króna í fyrra og lækkaði um 195 milljónir milli ára. Framfærslustyrkir voru stærsti útgjaldaliðurinn, rúmir 2,6 milljarðar króna. Þeir lækkuðu um 657 milljónir frá fyrra ári, eða um fimmtung.
Ágreiningur um móttöku flóttafólks
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar segja í bókun að stór hluti notenda sé fólk frá Úkraínu, Palestínu og Venesúela sem hafi fengið dvalarleyfi vegna aðstæðna í heimalöndum sínum. Taka þurfi vel á móti fólkinu og tryggja því stuðning. Ríkið verði að tryggja fullnægjandi fjármögnun og endurskoða kostnaðarskiptinguna svo borgin beri ekki óeðlilega stóran hluta kostnaðarins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins lýsa áhyggjum af umræðu þar sem gefið sé í skyn að útlendingar misnoti velferðarkerfið í stórum stíl. Fjölgun erlendra notenda skýrist að verulegu leyti af komu flóttafólks. Aðstoðin sé yfirleitt tímabundin og erlendir ríkisborgarar fái hana að jafnaði skemur en íslenskir. Notendum hafi fækkað frá 2022 þrátt fyrir fjölgun erlendra íbúa og ríkið endurgreiði umtalsverðan hluta kostnaðarins. „Mikilvægt er að umræða um fjárhagsaðstoð byggist á staðreyndum,“ segir í bókun þeirra.
Fulltrúi Miðflokksins vill hins vegar stöðva frekari móttöku og staðsetningu fólks með vernd í Reykjavík. Hann telur stefnu núverandi og fyrrverandi ríkisstjórna auka kostnað og álag á húsnæðismarkað, skóla og velferðarþjónustu. Fjárhagsaðstoð þurfi að leiða til sjálfstæðrar framfærslu og henni verði að fylgja krafa um atvinnuleit, íslenskunám eða önnur úrræði fyrir vinnufært fólk. „Nú þegar er komið yfir þolmörk borgarinnar til móttöku frekari hælisleitenda,“ segir í bókuninni.