Ólga og mótmæli hafa verið í Paragvæ í vikunni eftir að seðlabankinn tók yfir stærsta banka landsins, Ueno-banka.
Nær helmingur Paragvæ-búa var í viðskiptum við bankann og fólk hefur ekki getað tekið innistæður sínar út. Forseti landsins, Sangiago Pena, hefur setið undir ámæli því hann átti hlut í móðurfyrirtæki bankans þar til í fyrra.
Forsetinn sagði af sér í gær en þingið neitaði að samþykkja afsögnina. Þingið hóf í dag ákæruferli á hendur honum. Eftir embættislok njóta forsetar friðhelgi upp að vissu marki og því var afsögnin ekki samþykkt.