Greint er frá þessu í frétt RÚV og haft eftir Elimari Haukssyni, lögmanni hins grunaða. Faðir hans var einnig handtekinn í tengslum við málið en honum var sleppt úr haldi lögreglu í gær.
Myndbandsupptaka er meðal gagna sem lögreglan hefur undir höndum í tengslum við rannsókn á manndrápinu í Breiðholti. Upptakan er úr öryggismyndavél í grennd við þar sem áflogin brutust út en atvikið átti sér stað á horni Hraunbergs og Austurbergs í Breiðholti. Þetta herma heimildir fréttastofu.
Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu leiddi uppgjörið til átaka milli mannanna en sonurinn er grunaður um að hafa stungið einn mann til bana og annan lífshættulega.
Lögregla hafi komið að þeim þar sem þeir lágu í blóði sínu í Breiðholti eftir að tilkynning barst um málið klukkan hálf tvö aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt heimildum voru feðgarnir einnig með alvarlega áverka.
Feðgarnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á sunnudag fram til 9. nóvember. Faðirinn var látinn laus úr haldi í gær.
Fréttin hefur verið uppfærð.