Maður á fertugsaldri sem var handtekinn um síðustu helgi vegna gruns um manndráp í Breiðholti hefur verið látinn laus úr einangrun. Hann ber við neyðarvörn.
Faðir mannsins sem er á sextugsaldri og var sömuleiðis handtekinn fyrir viku var látinn laus úr haldi í gær.
Til átaka kom á milli feðganna og tveggja manna í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. Þar beitti sonurinn hnífi og lést annar þeirra sem varð fyrir stungunum. Hinn særðist talsvert, en er ekki í lífshættu.
Voru á Álfinum fyrr um kvöldið
Samkvæmt heimildum fréttastofu náðist atburðarásin á eftirlitsmyndavél og er meðal rannsóknargagna lögreglu. Heimildir fréttastofu herma að allir mennirnir hafi áður en til átakanna kom, verið á sportbarnum Álfinum, sem er í Hólagarði í Breiðholti. Þar hafi þeir sést eiga samskipti.
Gæsluvarðhaldskrafan yfir syninum rennur út á mánudagsmorgun, 9. nóvember, og Elimar Hauksson lögmaður hans segir líklegt að farið verði fram á framlengingu varðhaldsins.
Hann segir að slíkri kröfu verði andmælt á grundvelli neyðarvarnar; umbjóðandi sinn hafi verið að verjast árásum hins látna og samverkamanns hans.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu miðar rannsókn vel og „fáir lausir endar eftir“.