Isaac Herzog, forseti Ísraels, hefur falið Gadi Eisenkot að mynda ríkisstjórn. Takist Eisenkot að gera það tekur hann við sem forsætisráðherra af Benjamín Netanjahú, þaulsetnasta forsætisráðherra landsins.
Eisenkot er leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Hann er fyrrverandi yfirmaður í Ísraelsher og nýgræðingur á sviði stjórnmála. Blokkin hans fékk 48 þingsæti eftir kosningarnar. 120 sæti eru í ísraelska þinginu Knesset, sem er til húsa í Jerúsalem. Hægri blokkin, sem Netanjahú leiðir, fékk 53 sæti á þinginu. Hvorugri tókst að tryggja sér meirihluta í kosningunum.
Eisenkot hét því að gera allt í sínu valdi til að mynda nýja ríkisstjórn eftir að hann fékk stjórnarmyndunarumboðið.
Langt og strangt ferli fram undan
Búist er við að stjórnarmyndunin geti tekið margar vikur. Sá sem fær umboðið hefur 28 daga til að mynda stjórn en á möguleika á að fá 14 daga til viðbótar.
Stjórnarandstöðublokk Eisenkots hefur neitað að mynda bandalag með flokkum Araba, þrátt fyrir að stuðningur þeirra gæti tryggt henni meirihluta á þingi.
Annar möguleiki fyrir Eisenkot væri að mynda ríkisstjórn með flokkum strangtrúaðra gyðinga. Hann og bandamenn hans hafa áður forðast samstarf við þessa flokka. Þriðji möguleikinn er að mynda þjóðstjórn með Netanjahú.
Sérfræðingar segja alla þrjá möguleika ólíklega. Ef Eisenkot tekst ekki að mynda stjórn fær annar fulltrúi stjórnmálaflokka á þingi tækifæri til þess og ef það bregst getur þingið útnefnt annan fulltrúa. Þetta ferli má ekki taka meira en um 100 daga.
Ef engum tekst að mynda ríkisstjórn verður boðað aftur til kosninga.