Dómstóll í Kenía dæmdi í gær Paul Mackenzie, leiðtoga sértrúarsafnaðar, í 200 ára fangelsi fyrir að myrða 190 börn og einn fullorðinn. Þau dóu úr hungri að hans skipan. Reuters greinir frá.
Mackenzie var sakfelldur fyrir morðin ásamt 28 öðrum. Hann skipaði fylgjendum sínum að svelta börn sín til bana svo þau gætu mætt Jesú.
Mackenzie, sem kallaði sig predikara, var leiðtogi sértrúarsafnaðar sem nefnist Alþjóðleg kirkja góðra frétta. Hann var handtekinn 2023 eftir að yfir 400 lík fundust í grunnri gröf í Shakahola-skógi nærri strönd Kenía, flest barnslík.
Krufning leiddi í ljós að mörg barnanna í fjöldagröfunum höfðu dáið úr hungri en sum þeirra höfðu kafnað, verið kyrkt eða veitt höfuðhögg. Umfangsmikil rannsókn hófst og málið vakti alþjóðlega athygli.
Í réttarhöldum yfir Mackenzie og öðrum sakborningum kom jafnframt fram að í sumum tilfellum voru börnin einangruð og neitað um mat og foreldrar þeirra horfðu á. Eitt greindi frá því að konu sem var nýbúin að fæða barn hefði verið meinað að hafa það á brjósti. Barnið dó úr næringarskorti eftir 12 daga og konan var hvött til að fasta og fylgja barni sínu í dauðann.
Talið er að börnin 190 séu meðal um 500 meintra fórnarlamba eins mannskæðasta fjöldamorðs sem tengst hefur sértrúarsöfnuði.
Dauðarefsing ekki samþykkt
Saksóknarar fóru fram á dauðarefsingu yfir Mackenzie og töldu umfang og aðstæður morðanna réttlæta þyngstu mögulegu refsingu. Dómari féllst ekki á það. Dauðarefsingu hefur ekki verið framfylgt í Kenía síðan 1987.