Þetta fullyrðir blaðið The Rolling Stolles en áður hefur komið fram að þremenningarnir Callum Turner, Jack Lowden og Josh O'Connor hafi farið í prufur. Denis Villeneuve mun leikstýra næstu mynd um breska njósnarann sem verður sú fyrsta síðan Daniel Craig tók lokasprettinn í hlutverkinu í No Time To Die árið 2021. Steven Knight mun skrifa handrit myndarinnar en hann er þekktastur fyrir að hafa skapað sjónvarpsþættina Peaky Blinders.
Fram kemur í frétt miðilsins að leikararnir hafi mætt í prufur í lok október. Ekkert liggur fyrir um það hvenær verður valið í hlutverkið en leitin hófst í maí. Einnig hafi verið rætt við breska popparann Harry Styles en ekki er á hreinu hvort hann hafi mætt í prufur.
Um er að ræða fyrsta skiptið sem nýr Bond verður valinn eftir að Amazon eignaðist réttinn að Bond kvikmyndabálknum. Amazon keypti MGM kvikmyndaverið árið 2022 og gerði svo samning við Barböru Broccoli og Michael G. Wilson um fullan rétt á kvikmyndaútgáfu vegna njósnarans í fyrra.