Byssumaðurinn skaut á fólk af handahófi þegar hann ók inn á Aðaltorgið, vinsælan ferðamannastað í miðborginni, að sögn lögreglunnar í Kraká. Lögreglumenn séu á meðal hinna særðu.
Árásarmaðurinn særðist í skotbardaga við lögreglumenn skammt frá þeim stað þar sem árásin hófst og var fluttur á sjúkrahús, að sögn lögreglu.
Katarzyna Cisło, talskona lögreglunnar í Kraká, sagði við fréttastofu TVN24 að árásarmaðurinn hefði verið klæddur í hermannafatnað og notað langt skotvopn í árásinni sem hannað væri fyrir hernað. Lögregla hafi fundið mörg önnur vopn og skotfæri í bíl hans.
Cisło bætti við að byssumaðurinn hefði verið einn að verki og að almenningi stafi engin frekari hætta.
Utanríkisráðuneytið beinir skilaboðum til Íslendinga í borginni
Donald Tusk forsætisráðherra Póllands hefur gefið frá sér yfirlýsingu vegna árásarinnar. Hann segir árásina nú til rannsóknar lögreglu og að hann sjálfur fylgist grannt með stöðunni.
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hvetur Íslendinga í Kraká til að láta aðstandendur vita eða gera grein fyrir sér á samfélagsmiðlum. Þá er fólk hvatt til þess að hafa samband við neyðarnúmer borgaraþjónustu í síma +354 545-0-112 ef aðstoðar er þörf.
Skotið á sporvagn
Sporvagnsstjóri tilkynnti um klukkan 15 að skotið hefði verið á vagn hans af manni í bíl á ferð þegar hann ók fram hjá aðaltorginu, að sögn almenningssamgöngufyrirtækis Kraká. Rúðan í stjórnklefa sporvagnsstjórans hafi brotnað.
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, sagði í færslu á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, að lögreglan rannsakaði árásina. Karol Nawrocki, forseti Póllands, sagði að hugur sinn væri hjá fórnarlömbunum, hinum særðu og fjölskyldum þeirra.
Kraká er næststærsta borg Póllands og um 250 kílómetra frá höfuðborginni Varsjá. Um fimmtán milljónir ferðamanna heimsækja borgina árlega og er umrætt torg einn vinsælasti áfangastaðurinn.
Fréttin var síðast uppfærð klukkan 17:30.