„Dana verður einstakur fjölmiðlafulltrúi,“ skrifaði Trump á Truth Social. „Þáðu starfið Dana, gerðu það!“ Óljóst er hvort forsetanum sé alvara með tilboðinu en Katie Zacharia, síðasti fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, hætti um miðjan október eftir aðeins fimm daga í starfi. White er vinur og bandamaður Trumps.
Breska ríkisútvarpið BBC segist hafa óskað eftir viðbrögðum frá bæði Hvíta húsinu og TKO Holdings, móðurfélagi UFC. Repúblikanaflokkur Trumps beið afhroð í þingkosningum sem fóru fram á þriðjudag og tapaði meirihluta sínum í báðum deildum Bandaríkjaþings.
Í færslu Trumps á síðdegis á laugardag lýsti forsetinn White sem „ofbeldisfullum bardagamanni og stríðsmanni“ og bað hann um að taka með sér nokkra þekkta UFC-bardagamenn í Hvíta húsið, „jafnvel þótt sumir séu ekki frá landinu okkar“.
„Við þurfum þetta fólk til að verja okkur gegn brjálaða vinstrinu,“ skrifaði Trump jafnframt og birti myndir af sex UFC-bardagamönnunum.
Í kjölfarið á færslu Trumps birti White mynd af sér á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hann virðist standa fyrir aftan ræðupúltið í blaðamannafundasal Hvíta hússins.
UFC, sem stendur fyrir Ultimate Fighting Championship, er bandarískt fyrirtæki sem rekur þekktustu deildina fyrir blandaðar bardagaíþróttir. Gunnar Nelson var fyrsti Íslendingurinn til að keppa fyrir UFC.