„Manni er náttúrulega svakalega brugðið,“ segir Bjarni Vestmann sem var á veitingastað ásamt Rakel Árnadóttur, eiginkonu sinni, við torg í Kraká í Póllandi þegar skotárás hófst.
Sex hið minnsta létust og á annan tug særðist í árásinni.
Varla búin að fá matinn þegar þau heyrðu hvelli
Bjarni og Rakel voru nýkomin til borgarinnar þar sem þau ætla að vera fram á þriðjudag. Það fyrsta sem þau gerðu var að ganga um gamla markaðstorgið í borginni og setjast niður á veitingastað.
„Við vorum varla búin að fá matinn okkar þegar við heyrðum hvelli. Fyrst datt manni í hug að þetta gætu verið flugeldar en svo var þetta svo hratt og reglulegt að það voru eiginlega allir sem áttuðu sig á því samstundis.“
Hjónin sátu utandyra á veitingastaðnum og Bjarni segir alla gesti sem sátu utandyra og þjóna hafa hlaupið inn þegar skotárásin varð.
„Stuttu seinna, þetta gekk mjög fljótt yfir, þá fór ég út og sá að það var verið að stumra yfir konu en því miður var ekki hægt að bjarga lífi hennar.“
Eftir það áttuðu hjónin sig á því að skotið hafði verið á fleira fólk. „Meðal annars á allmarga inni í verslun Zöru sem varþarna við torgið rétt hjá okkur.“
Árásamaðurinn keyrði inn á torgið og hóf skothríð. Lögregla yfirbugaði manninn.
„Þegar þetta var yfirstaðið og ég kom út aftur þá áttaði ég mig á því að þetta var ekki nema fimmtíu metra frá því þar sem við sátum.“
Mikill ferðamannastaður
Bjarni segir þau hjónin hafa séð marga sem urðu fyrir árásinni.
„Við fórum framhjá versluninni Zöru, þar var ein kona sem lá fyrir utan verslunina, glerbrot út um allt. Það hefur verið skotið á gluggana og anddyrið og fólk inni sem var verið að hlúa að.“
Hann segir mikla ringulreið hafa myndast en að lögregla hafi verið fljót á vettvang og sjúkralið brugðist hratt við og hlúið að fólki. Sjúkraþyrla var einnig send á vettvang og lenti á torginu.
Það var á endanum var torgið rýmt og öllu lokað. Bjarni segir þau hjónin hafa leitað skjóls inni á veitingastaðnum til að jafna sig eftir árásina.
„Þegar við komum út var okkur vísað beint út af torginu.“
Torgið er vinsæll og fjölmennur ferðamannastaður.
„Það er allt fullt af ferðamönnum, meira segja núna. Það vakti mesta furðu, sem betur fer, hversu fáir féllu á torginu en að sama skapi var það áfall að sjá hversu margir féllu í versluninni Zöru.“
Sorglegt að hugsa til fólksins sem varð fyrir árásinni
Hvernig líður ykkur núna?
„Ja sko, manni er náttúrulega svakalega brugðið en það er náttúrulega misjafnt hvernig fólk bregst við strax eftir áfall. Það er margbreytilegt hvernig fólk bregst við. Fyrir þá sem verða fyrir miklu sjokki er gott að þeir leiti sér hjálpar.“
Bjarni segir þau hjónin hafa talað við fólk á vettvangi og skynjað mikla samstöðu meðal fólks, bæði meðal heimamanna og erlendra ferðamanna.
„Þetta er friðsæl og falleg borg og íbúar Krakár eru gestrisnir þannig að við ætlum bara að reyna að njóta þess sem eftir er af ferðinni þó hún hafi ekki byrjað vel.“
Hann kennir ekki í brjósti um sjálfan sig eftir árásina.
„Ég vorkenni okkur ekki neitt, ég vorkenni frekar fólkinu sem varð fyrir árásinni og aðstandendum þeirra. Það er sorglegt til þess að hugsa að þau hafi lent í þessu í dag.“
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hvetur Íslendinga þar til að láta aðstandendur vita eða gera grein fyrir sér á samfélagsmiðlum. Fólk er hvatt til þess að hafa samband við neyðarnúmer borgaraþjónustu í síma +354 545-0-112 ef aðstoðar er þörf.
Íslendingum á vettvangi er bent á að virða lokanir og tilmæli yfirvalda og fylgjast með fjölmiðlum á staðnum.