Stórum áfanga í ofanflóðavörnum Seyðisfjarðar lauk í gær þegar vinnu lauk við Bakkagarðinn, þriðja og síðasta varnargarðinn norðan bæjarins. Sveitarstjóri Múlaþings segir það fagnaðarefni en minnir á að nauðsynlegt sé að hefja uppbyggingu á aurflóðavörnum sunnan við bæinn strax á næsta ári.
„Þetta er búið að vera ansi stórt verkefni sem er búið að vera í gangi núna alveg frá sumrinu 2023,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Um mánuður af frágangsvinnu sé þó eftir á svæðinu.
Uppbygging ofanflóðavarna hefur staðið yfir síðan aurskriður féllu á bæinn árið 2020 og ollu bæði eyðileggingu og ógnuðu lífi fólks. Stefnt er á að hefjast handa á næsta ári við frekari uppbyggingu á ofanflóðavörnum sunnan megin.
„Þar er áherslan á aurflóðavarnir og þær eru svona svolítið flóknari því það er svona sambland af görðum, netum og skurðum til að veita vatni. Við vonumst til þess að það verk verði boðið út á næsta ári en ég veit að það er enn þá á hönnunarstigi.“
Nýtast einnig í útivist
Dagmar segir garðana fyrst og fremst hugsaða til þess að auka öryggi fólks sem býr á svæðum þar sem er ofanflóðahætta.
„En það sem er skemmtilegt við þessa framkvæmd er að síðan nýtast garðarnir líka til fjölbreyttrar útiveru, það stendur til að útbúa fjallahjólaleið ofan á þeim og fólk notar þá mikið þegar það er að fara út að ganga eða hlaupa,“ segir hún.