Þetta er meðal þess sem fram kom í miðstjórnarræðu Lilju á Laugarbakka í dag. „Tvö ár eru liðin af kjörtímabilinu og verðbólgan er hærri en þegar ríkisstjórnin tók við. Við höfum glatað tveimur mikilvægum árum. Ríkisstjórnin skilar ekki bara auðu í efnahagsmálum, hún er beinlínis skaðleg,“ sagði Lilja.
Hún benti á að verðbólgan hefði mælst 5,9 prósent í október og stýrivextir væru enn 8 prósent. Háir vextir bitnuðu á fjölskyldum, ungu fólki og fyrirtækjum og drægju úr fjárfestingu og framtíðartækifærum. „Það er ekki nóg að segjast vera með sleggju, henda í óteljandi sjálfur og halda að þetta gerist af sjálfu sér,“ sagði Lilja. Eitt af mikilvægustu verkefnunum væri að ná niður verðbólgu.
„En við verðum líka að gera það með skynsamlegum hætti. Það er nefnilega hægt að ná verðbólgu niður með því að kæfa efnahagslífið. Með því að draga svo mikið úr eftirspurn, fjárfestingu og atvinnu að hagkerfið stöðvast. Það er eins og að lækna sjúklinginn með því að drepa hann. Slík hagstjórn er ekki sigur. Hún er ósigur.“
„Daði, það er bannað að plata“
Lilja gagnrýndi jafnframt vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í málefnum Landsvirkjunar og brotthvarf Harðar Arnarsonar eftir sautján ára starf sem forstjóri. Hún minnti á að Landsvirkjun hefði greitt um 108 milljarða króna í arð til ríkisins frá árinu 2020 og sagði mikilvægt að standa vörð um faglega stjórnun og sjálfstæði fyrirtækisins.
Sagði hún flokkinn sem auglýsti fyrir síðustu kosningar almannahagsmuni framar sérhagsmunum hafa nú sýnt sitt rétta andlit þar sem sérhagsmunastefna Viðreisnar ráði för.
„Ég vil segja við ykkur Framsóknarfólk: Landsvirkjun er í eigu þjóðarinnar og Landsvirkjun skal áfram vera í eigu þjóðarinnar! Ég vil segja við ríkisstjórnina: „Látið Landsvirkjun í friði! Og við fjármálaráðherra vil ég segja: Daði, það er bannað að plata“