Talið er að um 146 þúsund hafi mótmælt víða um Frakkland í dag, þar af um 46 þúsund í höfuðborginni samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum.
Þau segja að færri mótmælendur hafi tekið þátt í mótmælunum í dag en undanfarna þrjá laugardaga. Verkalýðshreyfingin segir þó að 250 þúsund mótmælendur hafi mótmælt um allt land og 75 þúsund í París.
The New York Times segir að lögregla hafi handtekið 360 á mótmælunum vítt og breitt um landið og leitað á um 40.000 manns til að koma í veg fyrir að fólk færi með vopn inn á svæði þar sem mótmæli fóru fram.
Líkt og fyrr mótmæla stúdentar slæmu ástandi í framhalds- og menntaskólum, kennaraskorti og inntökuferli fyrir háskólanám. Verkafólk krefst hærri launa og betrumbóta á opinberri þjónustu.