Er þetta meðal þess sem kemur fram í viðtali Heimildarinnar við foreldra Hönnuh, þau Samönthu og Gregory Lane.
Hannah Jane Large lést ásamt tveimur öðrum ungmennum, Arndísi Höllu Guðlaugsdóttur og Benjamín Guðmundssyni, í bílslysi á Krísuvíkurvegi þann 31. ágúst síðastliðinn. Vísbendingar séu um að bíllinn hafi verið á um 230 kílómetra hraða þegar ökumaðurinn missti stjórn á bílnum og hafnaði á kletti við veginn.
Sjá einnig: Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða
Foreldrar Hönnuh segjast í samtali við Heimildina enn vera að púsla saman atburðarásinni þetta örlagaríka sunnudagskvöld sem dóttir þeirra lést. Lögreglan hafi veitt þeim takmarkaðar upplýsingar þar sem rannsókn standi enn yfir en fjölskyldur þeirra sem létust séu í sambandi til þess að reyna að skilja atburðarásina og veita hvor annarri stuðning.
„Við vitum ekki almennilega hvað gerðist,“ hefur Heimildin eftir föður Hönnuh.
Þau viti þó að ökumaðurinn hafi tekið fram úr á Krýsuvíkurvegi á miklum hraða.
„Ég get ekki kallað þetta slys. Ég bara get það ekki,“ hefur Heimildin eftir Gregory, föður Hönnuh.
Slys sé þegar keyrt er á eðlilegum hraða. Jafnvel þótt ökumaðurinn hafi keyrt hratt, og tekur 150 kílómetra hraða sem dæmi, myndi hann fallast á að um slys væri að ræða.
„En á 220, 230 kílómetra hraða, það er ekki slys á vegarkafla þar sem hámarkshraðinn er 70 kílómetrar á klukkustund,“ er haft eftir Gregory.
„Þeir þöndu vélarnar og þutu í burtu á ofsahraða“
Við hafi tekið ómögulegur hversdagsleiki. Lögreglan á Írlandi hafi veitt takmarkaðar upplýsingar en þau hafi fengið að vita að Hannah hefði lent í bílslysi og væri látin.
Í kjölfar andlátsins hafi fjölskyldan farið til Íslands, fengið ösku dóttur sinnar og sótt minningarathöfnina. Þau hafi farið á slysstað og þeim hafi brugðið hvað vegurinn væri illa upplýstur og afskekktur.
Sjá einnig: Halda minningarstund fyrir Hönnuh
Þau lýsa minningarathöfninni í Áskirkju sem fallegri og að kirkjan hafi verið full ungu fólki. Þá hafi Samantha, móðir Hönnuh, fyrst skilið hvað Hannah hafði snert mörg líf. Eitt hafi þó reitt fjölskylduna til reiði. Á athöfninni hafi drengir þanið bíla sína og brunað í burtu á ofsahraða. Samantha segir það hafa verið vanvirðingu við harmleikinn sem átti sér stað.
Sjá einnig: Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi
Foreldrarnir segjast þakklát Íslendingum fyrir þann stuðning sem fjölskyldan fékk. Þau hafi tekið eftir því hvernig forsetin minntist ungmennanna sem létust og sendi Höllu Tómasdóttur orðasendingu og hafi fengið fallega kveðju til baka.
Í september var greint frá því að engin væri með stöðu sakbornings í málinu og taldi lögregla sig vera komin með skýra mynd á banaslysið.