Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand, sem hefur verið sakfelldur fyrir alvarleg kynferðisbrot, var aðeins 17 ára þegar faðir hans keypti vændisþjónustu handa honum í ferð þeirra til Hong Kong. Feðgarnir stunduðu síðan kynlíf með vændiskonum í sama herbergi.Þessi ótrúlega frásögn er meðal þess sem rifjað er upp í ítarlegri umfjöllun Daily Mail um fortíð grínistans og samband hans við föður sinn, Ron Brand. Frásögnin kemur úr sjálfsævisögu grínistans, My Booky Wook, sem kom út árið 2007.
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum