Fyrrum forseti Paragvæ, Santiago Peña, var ákærður í gær fyrir trúnaðarbrot og vanrækslu í starfi og fyrir að hagnast persónulega af viðskiptum Ueno-bankans sem féll í vikunni.
Peña sagði af sér embætti á fimmtudag eftir að stjórnarandstæðingar lögðu fram beiðni á þingi um að hann yrði ákærður til embættismissis. Peña átti hlutabréf í móðurfélagi bankans fram á síðasta ár. Saksóknarar fóru fram á að hann yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald og að allar eignir hans yrðu frystar.
Saksóknarar yfirheyrðu einnig Carlos Carballo fyrrverandi seðlabankastjóra í gær. Hann er ákærður fyrir sömu brot og er líka farið fram á að eignir hans verði frystar.
Áhyggjufullir innistæðueigendur
Fall bankans hefur skekið þjóðina en bankinn sá um reikninga fyrir nokkrar ríkisstofnanir og lífeyrismál ríkisins. Þá var um helmingur íbúa Paragvæ, þrjár milljónir manna, í viðskiptum við bankann. Seðlabanki Paragvæ tók yfir bankann í vikunni og það varð til þess að innistæðueigendur misstu aðgang að inneignum sínum í bankanum.
Þúsundir mótmæltu þessu á götum úti af ótta við að geta ekki leyst út inneignir sínar. Seðlabankinn segir að hann sé byrjaður að greiða út fyrir fram til ótilgreinds fjölda innistæðueigenda.
Varaforseti Paragvæ, Pedro Alliana, hefur verið skipaður forseti landsins og gegnir því embætti til 2028. Hann heitir því að bregðast ekki innistæðueigendum bankans.