Bandaríkjaher hefur framfylgt hafnbanni við strönd Íran og Hormússund svo mánuðum skiptir. Síðasta staðfesta árás Bandaríkjamanna á flutningaskip var fyrir tæpum mánuði á Ómamflóa, að sögn AP-fréttaveitunnar.
Stríðið við Íran hefur nú staðið yfir í rúma átta mánuði og sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í gær að Bandaríkjaher hefði gert nýjar árásir á Íran og beint þeim að írönsku loftvarnakerfi. Lýsti Trump hernaðaraðgerðunum sem „smávægilegum“ í samtali við fréttamenn. Miðstjórn Bandaríkjahers tjáði sig ekki um aðgerðirnar, jafnvel eftir að Trump hafði staðfest árásirnar.
Tilkynningin í dag er sögð koma í kjölfar minnst tveggja tilvika þar sem Miðstjórn Bandaríkjahers greindi ekki frá hernaðarárásum sem hún hafði gert á svæðinu. Þá hafa embættismenn þar neitað að staðfesta árásir þegar þeir voru spurðir út í fregnir heimamanna af sprengingum, að sögn AP-fréttaveitunnar.
Í margar vikur hefur Trump sagst íhuga að hefja nýja árásarhrinu á Íran eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum sem fram fóru á þriðjudag. Óánægja kjósenda með stríðsreksturinn er sagður hafa átt þátt í því að Repúblikanaflokkur forstetans tapaði meirihluta í báðum þingdeildum.
Að sögn AP-fréttaveitunnar hefur mikil spenna ríkt í Mið-Austurlöndum og víðar vegna möguleikans á að Bandaríkin hefji á ný hernaðaraðgerðir af fullum þunga gegn Íran í fyrsta sinn í næstum tvo mánuði.
Íranskir ríkisfjölmiðlar greindu frá því í kvöld að að sprengingar hefðu heyrst á Qeshm-eyju á Hormússundi, auk nokkurra sprenginga í höfninni í Jask. Ekki er ljóst hvað olli sprengingunum, að svo stöddu.
Íranski herinn sagði seint í dag að tvö olíuflutningaskip hefðu siglt á tundurdufl á Hormússvæðinu og kviknað hefði í þeim. Ekki var greint frá því undir hvaða fána skipin sigldu né hvert þau voru á leið.
Fréttin er í vinnslu.