„Mér er ánægja að tilkynna að Stephen Miller, núverandi aðstoðarstarfsmannastjóri Trump-stjórnarinnar og einn af mínum traustustu ráðgjöfum, verður starfsmannastjóri frá og með mánudeginum 9. nóvember 2026,“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á Truth Social.
Susie Wiles muni færa sig yfir í pólitíska starfsemi Trumps (e. „the Trump Political Operation“) og þakkar forsetinn henni fyrir störf sín.
„Hún hefur staðið sig frábærlega!,“ skrifar Trump
Sjá einnig: Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista
Trump réð Wiles sem starfsmannastjóra í nóvember 2024 eftir að hann var kjörinn forseti í annað sinn.
Var hún fyrsta konan sem gegndi embætti starfsmannastjóra Hvíta hússins. Hún og Trump hafa þekkst um árabil og hafa lengi unnið saman. Hún er talin hafa verið áhrifamikil innan Hvíta hússins og er sögð hafa spilað stóra rullu í kosningabaráttu forsetans.