Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu og gististöðum. Nú hafa þeir endurtekið leikinn og er afraksturinn sería tvö sem hefur göngu sína á Sýn+ í kvöld og verður sýnd á föstudagskvöldum.
„Það er rosalega gaman að fara með Dóra í þessar ferðir því hann er mikill lúxusmaður. Hann elskar að fá sér gott að borða, drekka gott náttúruvín, reykja stóra vindla og njóta. Það er alveg einstaklega gaman að fara með honum í þetta því við gerum ekkert af þessum hlutum í þáttunum,“ sagði Steindi Jr. um seríuna.
Í stiklu fyrir þættina hér að neðan má sjá þegar þeir vinirnir fara í þriggja tíma limósínuferð, gista á ömurlegu hóteli og fara í ógeðslegan rottutúr.