Þetta kemur fram í farsóttarfréttum embættis landlæknis þar sem segir að þátttaka í bólusetningum gegn Covid-19 bólusetningum hafi farið minnkandi og verið minni en í almennum bólusetningum gegn inflúensu. Þátttakan hafi einnig dregist saman meðal elstu aldurshópa sem eigi í mestri hættu á alvarlegum veikindum vegna veirunnar.
Síðasta haust var í fyrsta sinn frá því að bóluefnin komu til landsins ákveðið að ráðast ekki í sérstakt bólusetningarátak gegn Covid-19 samhliða almennum bólusetningum gegn inflúensu. Í farsóttarfréttum segir að áhrif þess séu ekki merkjanleg að því er varðar fjölda greininga eða innlagna. Ekki verður því heldur ráðist í átak nú.
Í kringum fimmtíu manns hafa verið lagðir inn á þessu ári vegna Covid-19 og er það mun minna en árið áður. Áhrifatími bólusetningarinnar er álitinn um sex mánuðir þótt nokkurra áhrifa gæti lengur hjá mörgum, að því er segir í farsóttarfréttum.