„Við í Hagaskóla ákváðum í sameiningu, það er að segja kennarar, á síðasta skólaári, að endurhugsa svolítið hvernig við notuðum upplýsingatækni eða tækin öllu heldur í skólanum. Þetta hafði verið umræða í svolítinn tíma. Það sem við vorum að velta fyrir okkur var hver væri ávinningurinn og hvort hann væri raunverulegur og hvernig við eða nemendur væru að nýta tækin í skólunum,“ segir Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla. Mikil ánægja sé með breytinguna meðal nemenda, foreldra og starfsfólks.
Hann minnir á að hjá Reykjavíkurborg og mörgum öðrum sveitarfélögum hafi hver og einn nemandi á unglingastigi fengið spjaldtölvu til afnota, oftast svonefndar Chrome-bækur (e. Chromebook). Þeir fá tækið í hendurnar að hausti, bera ábyrgð á því og eiga að nýta það í sínu námi yfir veturinn.
Byggir á rannsóknum um hvað gagnast nemendum best
Þegar nemendur fá Chrome-bók fá þeir líka aðgang að því sem nefnist Google Classroom þar sem hægt er að lesa skilaboð frá kennara og margt fleira. Ómar segir að Chrome-bækurnar hafi komið sér vel á covid-tímanum en kennurum við Hagaskóla hafi þótt rétt að ræða hvað nemendur væru í raun og veru að fá út úr því að nota þessi tæki.
Ómar segir að mjög gagnlegar umræður hafi farið fram í skólanum. síðasta skólaár og árið þar á undan. „Sem varð til þess að við í raun og veru tókum ákvörðun um að hverfa frá tækjum og aftur í bækur, blað og blýant og penna,“ segir hann. Sú ákvörðun byggðist ekki einungis á hyggjuviti eða hugmyndum kennaranna, heldur á rannsóknum á hvað gagnast best við nám, m.a. rannsóknum taugasálfræðinga um hvernig nám fer fram. Kennarar hafi tengt sterkt við og fundið muninn á að lesa af skjám eða af bók. Einnig sé munur á að slá inn texta á tölvu eða skrifa niður á blað. Það taki lengri tíma að skrifa á blað og krefjist meiri hugsunar.
Nemendum er ekki aðeins ætlað að lesa og leysa verkefni í tölvunum heldur líka að lesa þar heilu námsbækurnar.
Tækin mynda vegg á milli nemenda, kennara og foreldra
Ómar segir að kennarar hafi líka rætt að tækin mynduðu eins konar vegg á milli nemenda og kennara og einnig á milli nemendanna og foreldra. Í Hagaskóla væri litið svo á það væri grundvallaratriði að nemendur mynduðu tengsl, við kennara og við hver annan. Tengslin við foreldrana væru sömuleiðis mikilvæg. „Það er mikilvægt að nám sé sýnilegt og við fengum ábendingar frá foreldrum um að nú væri búið að loka nám barnanna þeirra inni í tækjum sem þau hefðu ekki eins góðan aðgang að eins og skólatöskum þeirra með bókum og til þess að geta fylgst með og stutt við nám barnanna sinna,“ segir hann. Auðvitað væru alls konar leiðir í því mögulegar og foreldrar gætu haft aðgang að tækjunum með lykilorðum. Það væri á hinn bóginn allt öðruvísi að skoða námsefnið í tölvum eða í bókum og vinnubókum. Það hefði einnig myndast raunverulegur veggur í skjáunum þegar kennarar komu inn í stofur og nemendur voru með tölvurnar opnar.
Það skipti líka máli að í skólanum þurfi að búa til umhverfi þar sem nemendur geti einbeitt sér og kafað ofan í námsefnið.
„Og þá sjáum við bara jafnvel þó svo að tækin gagnist alveg við mjög margt sem nemendur gera, þá eru þau líka mjög mikill þjófur á athygli. Þessi hugmynd um að vera með mörg verkefni í gangi, að vera að múltítaska, hefur mjög neikvæð áhrif á nám nemenda,“ segir Ómar.
Gátu skilað um 300 fartölvum og notað peningana í annað
Þegar Chrome-bækurnar fóru inn í skápa gat skólinn skilað um 300 Chrome-bókum og notað peninginn, um 80.000 krónur á hverja tölvu, í eitthvað annað, meðal annars að ná í námsefni á pappírsformi. Þá gefi þetta skólanum svigrúm til að nýta fjölbreyttari tækni við kennslu, sé það talið henta.
Ómar segir að þá hafi skólinn þurft að takast á við að tiltölulega lítið er gefið út af námsbókum, sérstaklega fyrir unglingastigið. Það efni sé mikið til eingöngu gefið út á rafrænu formi sem krefjist þess að nemendur lesi af skjám, sem að dómi kennara við Hagaskóla er óheppilegt. „Og við höfum í raun og veru bara farið þá leið að bara kaupa fleiri ljósritunarvélar og stöndum bara við þær og erum að ljósrita ofan í nemendur, efni sem við viljum að þau hafi aðgang að.“
Þurftu allt í einu á gangaverði að halda
Ómar segir að breytingin hafi líka haft góð áhrif á skólabraginn. Nemendur séu nú hvorki með tölvu né síma uppivið í skólanum en það sé fyrst nú í vetur sem raunverulegur árangur náist í að vera með símalausan skóla.
Lætin á göngunum hafi aukist en þau séu bara eðlilegur hluti af samskiptum unglinga. Skólinn brást við með því að ráða í starf gangavarðar sem ekki hafði verið þörf á í nokkur ár. „Út af því að nemendur sátu bara svolítið mikið fyrir framan skjáina,“ segir hann.
En hvað segja nemendur?
Kolfinna Valfells, nemandi í 10. bekk, er ánægð með breytinguna. Henni gangi betur að læra og meðtaka upplýsingarnar, auk þess sem það sé gott að þurfa ekki að rogast með þunga tölvu í töskunni. Það sé þó líka erfitt að eiga ekki eins auðvelt með að afla sér upplýsinga og áður.
Olgu Alettu Roux, sem er líka í 10. bekk, fannst þetta ekkert frábær hugmynd í byrjun en hún tekur engu að síður undir með Kolfinnu. Hún segir að stemningin í skólanum hafi breyst eftir að Chrome-bækurnar fóru inn í skáp. Það er allt öðruvísi því það voru margir sem voru bara í tölvunum á göngunum, sátu bara á gólfinu og voru að spila einhverja tölvuleiki eða sátu í sófunum og voru að horfa á eitthvað.“ Nú, þegar engar tölvur og símar eru við höndina, sé meira spjallað á göngunum.
Við heyrðum líka í tveimur nemendum í áttunda bekk sem höfðu misjafnar skoðanir. Sveinn Sturluson sagði að það væri bull að nota tækin svona lítið. „Þetta er tækni framtíðarinnar,“ sagði hann.
Míu Anítu Briem Paraskevopoulos finnst breytingin góð en líka smávegis pirrandi því hún geri margt erfiðara.