Breska sjónvarpsstöðin Sky, búlgarska stöðin Nova TV og RTÉ, írska ríkissjónvarpið, fengu í dag sprengjuhótanir. Rask varð á starfsemi enda þurfti að rýma húsnæði.
Hótanirnar komu í tölvupósti þar sem sagði að sprengja hefði verið sett í bygginguna og að hún spryngi eftir fjörutíu og fimm mínútur. „Klukkan tifar,“ sagði einnig í póstinum.
Gefa til kynna rússneska tengingu
Tölvupóstarnir sem voru sendir til RTE og Nova voru undirritaðir með nafninu Mikhail Andropov. Þá stóð að höfundurinn væri einn af leiðtogum hóps sem bæri ábyrgð á sprengjuhótunum sem bárust um tugi farþegavéla í Evrópu í vikunni.
Þetta væri aðeins byrjunin á hvað biði Evrópuríkja í nálægri framtíð. Engar sprengjur fundust á sjónvarpsstöðvunum.
Eftirnafn höfundarins er það sama og Júríj Andropovs fyrrum aðalritara kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Þá er hægt að tengja yfirskrift tölvupóstanna „Message to the West" eða skilaboð til vestursins við heiti ævisögu Andropov, New Challenge to the West.
Samkvæmt Reuters er óvíst hvort að þetta eigi að gefa til kynna að það sé tenging við Rússland eða hvort einhver sé að reyna að beina augum að Moskvu.
Málið litið alvarlegum augum
Micheál Martin, forsætisráðherra Írlands, segir að ekki liggi fyrir hvort skipulögð glæpasamtök eða einstaklingar séu á bakvið hótanirnar né hvort þær tengist. Málið sé litið alvarlegum augum og sé til skoðunar.
„Þetta sýnir bara hvað það getur verið auðvelt að valda röskun á samfélaginu með óþægilegum aðgerðum eins og þessum. Þeim er ætlað að valda raski og ótta. Við verðum að halda ró okkar,“ sagði hann í samtali við RTE í dag.