Mikil eftirvænting ríkir eftir jólasöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum! sem verður frumsýndur á morgun. Björgvin Franz Gíslason fer þar með hlutverk Trölla sem kanónur á borð við Stefán Karl Stefánsson og Jim Carrey hafa leikið eftirminnilega.
Þegar hafa tæplega þrjátíu þúsund manns tryggt sér miða á sýninguna á þessu leikári. Uppselt er á allar sýningar út árið 2026 og aðeins örfáir miðar eftir á tvær sýningar, 5. og 6. janúar 2027. Dæmi eru um að fólk sé búið að skrá sig á biðlista eftir miðum sem gætu losnað. Því hefur leikhúsið byrjað að selja miða á sýninguna á næsta leikári, rúmlega ár fram í tímann.
Forsala á sýninguna hófst í vor og seldist nánast upp á þær sýningar á tveimur dögum. Þegar ljóst varð hversu mikill áhugi væri á jólasöngleiknum var brugðist við með því að fjölga sýningum verulega og alls tuttugu sýningum bætt við upphaflega planið. Svigrúmið er hins vegar fullnýtt og ekki hægt að bæta við fleiri sýningum á þessu leikári.
„Við höfum sjaldan séð viðlíka viðbrögð. Tæplega þrjátíu þúsund miðar eru þegar seldir og biðlistar farnir að myndast, þannig að okkur fannst frábært að geta svarað eftirspurninni með því að opna strax fyrir sýningar næsta leikárs. Það hefur ekki áður gerst í Borgarleikhúsinu að sýningar fari í sölu meira en ár fram í tímann!“ segir Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri Borgarleikhússins.
Þegar Trölli stal jólunum! er byggð á hinu vinsæla ævintýri Dr. Seuss frá árinu 1957 sem notið hefur mikilla vinsælda um allan heim. Sagan hefur verið færð í ótal búninga í gegnum tíðina, en þekktust þeirra er líklega kvikmyndin How the Grinch Stole Christmas frá árinu 2000 þar sem gamanleikarinn Jim Carrey fór með hlutverk Trölla.
Nú gefst fjölskyldum tækifæri til að skipuleggja jólaævintýrið langt fram í tímann og gera heimsókn á Þegar Trölli stal jólunum! að árlegri jólahefð.