Bókin, sem heitir Davíðstíminn – Sjálfstæð saga leiðtoga og lands, fjallar um Davíð Oddsson og þær vendingar sem hans stjórnartíð fylgdu. Ólafur Arnarson blaðamaður á DV hefur ritað lofsamlega gagnrýni um bókina sem Jón Viðar Jónsson leiklistargagnrýnandi með meiru deilir áfram.
Jón segir að þó höfundarnir séu vissulega ekki allra sé „fráleitt að reyna að þegja hana í hel – ef einhverjum skyldi detta það í hug!“
Í frétt sem Vísir birti kemur fram að höfundar hafi víða komið að lokuðum dyrum þegar þeir leituðu til helstu velunnara Davíðs eftir heimildum.
„Ég las bókina frá upphafi til enda, en ég sé ekki betur en hún sé að mestu leyti samin af spjallmenni, ai bot. Hún er líklega ein fyrsta bókin á íslensku, sem er gerð að mestu leyti af gervigreind. Það kemur ekkert nýtt fram í henni,“ segir Hannes á Facebook-síðu Jóns Viðars.