Sprengjuhótunum hefur verið beint að fjölda farþegaflugvéla í millilandaflugi í Evrópu í vikunni en hvorki sprengjur né sprengjuefni hafa fundist um borð í vélunum. Töluverð röskun var á flugi í gær vegna þessa. Sumum vélum var lent á öðrum flugvöllum en áætlað var og öðrum var fylgt eftir af herflugvélum.
Hótanirnar hafa haldið áfram í dag. Þeim var meðal annars beint að flugvél Ryanair á leið frá Róm á Ítalíu til Lissabon í Portúgal. Þá hafa fjórar hótanir borist flugvélum á leið til Frakklands og eað minnsta kosti átta að flugvélvelum á leið til og frá Vaclav Havel flugvellinum Prag í Tékklandi.
Lögreglan í Kaupmannahöfn var með viðveru á Kastrup-flugvelli í morgun vegna hótana sem ógna flugumferð. Samkvæmt frétt danska ríkisútvarpsins fannst ekkert og lögregla telur farþega ekki í neinni hættu.
Ein hótun barst til Íslands í gær, sem var ekki talin trúverðug. Það sama má segja um tvær sem bárust til Bretlands.
Ekki liggur fyrir hver er á bak við hótanirnar eða hvort þær tengist.