Þáttaröðin Married at First Sight UK hefur verið tekin af dagskrá eftir ásakanir um að tveimur konum hafi verið nauðgað af eiginmönnum sínum á meðan framleiðsla stóð yfir.Raunveruleikaþáttaröðin, sem var sýnd í tíu þáttaraðir, mun ekki snúa aftur eftir að konurnar tvær, og sú þriðja, sem sakaði eiginmann sinn um kynferðisbrot, stigu fram fyrr á þessu ári, að því er Channel 4 tilkynnti á fimmtudag. Önnur konan hélt því einnig fram að eiginmaður hennar hefði hótað að kasta sýru á hana.
Vinsæl raunveruleikaþáttaröð tekin af dagskrá eftir ásakanir þriggja kvenna um kynferðisbrot eiginmanna sinna