Ítalski pizzubakarinn Davide Tamburella var rekinn frá veitingastaðnum La Costa í Brisbane í Ástralíu í maí eftir að hafa lent upp á kant við stjórnendur veitingastaðarins.
Breska ríkisútvarpið segir að Tamburella hafi leitað til áströlsku vinnumálastofnunarinnar því hann taldi að uppsögn hans hefði verið óréttmæt. Í úrskurði vinnumálastofnunarinnar sem birtur var á þriðjudag kom fram að ágreiningurinn hefði verið vegna þess að Tamburella neitaði að setja ananas á pizzur því það væri móðgun við menningu hans. Hann neitaði alls þrisvar sinnum á síðastliðnum fjórum árum að setja ananas á pizzur.
Þetta umdeilda pizzuálegg er einkar vinsælt í Brisbane, sem er hálfgerð höfuðborg ávaxtarins í Ástralíu en þar er ræktaður nær allur ananas sem seldur er í landinu.
Orðljótur og óánægður pizzubakari
Framkvæmdastjóri veitingastaðarins sagði þó að deilan við Tamburella snerist ekki aðeins um álegg á pizzum.
Í úrskurðinum var sett út á samskiptastíl Tamburella, ljótt orðbragð og vaxandi óánægju hans á veitingastaðnum. Hann hafði vonast til að starfið myndi styrkja umsókn hans um vegabréfsáritun sem hefði veitt honum leyfi til varanlegrar dvalar í landinu, en þær fyrirætlanir runnu út í sandinn þegar honum var sagt upp störfum.
Tamburella starfar nú á öðrum veitingastað í Brisbane. Samkvæmt BBC er ekki ananas á matseðli veitingastaðarins.
Umdeild áleggstegund
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem heitar umræður og deilur skapast um ananas á pizzur. Guðni Th. Jóhannesson, fyrrum forseti Íslands, sagði að banna ætti að banna ætti pizzur með ananasáleggi í heimsókn í Menntaskólann á Akureyri árið 2018.
Ummæli hans vöktu mikla athygli og rötuðu í ýmsa miðla. Sjálfur Justin Trudeau, þáverandi forsætisráðherra Kanada, blandaði sér í málið og tísti á Twitter að hann væri í „#TeamPineapple“. Guðni baðst svo afsökunar á ummælunum í viðtali á kanadísku útvarpsstöðinni CBC en svokölluð Hawaii-pizza er talin eiga uppruna sinn í Kanada.