Síðustu þrjá daga hefur Guðlaugur, sem er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd, sent tíu fyrirspurnarskjöl á mismunandi ráðuneyti og eru fyrirspurnirnar samtals um 320 talsins.
Fyrirspurnirnar ná samtals yfir um 40 blaðsíður og geta lesendur glöggvað sig á þeim hér.
Þær varða fjölda atriða sem virðast tengjast fjárlagafrumvarpinu með mismiklum hætti.
Meðal margs annars er spurt ítarlega út í varnartengd útgjöld, útgjöld tengd löggæslu og landamæraeftirliti, jólabónusa til lífeyrisþega, félagið Göng og brú ohf. og margt fleira. Einnig er spurt út í styrki íslenskra og bandarískra stjórnvalda til Fulbright-stofnunarinnar á Íslandi.
„Setja sand í tannhjólin“
„Mér finnst þetta líta svolítið út fyrir það að menn séu bara að setja sand í tannhjólin,“ segir Sigurjón Þórðarsson, þingmaður Flokks fólksins og formaður nefndarinnar, í samtali við Vísi.
Formanninum segist þykja eðlilegt að leggja fram spurningar um hin og þessi mál við meðferð fjárlagafrumvarpsins.
„En hér er ekki endilega verið að spyrja út í hluti sem tengjast,“ bætir Sigurjón við og nefnir þar spurningu Guðlaugs Þórs um hver „starfs- eða tignarheiti“ starfsmanna Landhelgisgæslunnar séu.
Fimm fyrirspurnir varða sprengjusveit Landhelgisgæslunnar, svo sem útgjöld og starfsgildi eða einfaldlega hvað hún nefnist: hvort hún heiti „SOF Odin“ eða „SOF Óðinn“.
Ríflega 50 fyrirspurnir enda á strengnum „[s]ýnið sérstaklega stöðu ársins 2025, breytingar árið 2026 frá þeirri stöðu og fyrirhugaðar breytingar samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2027“, einnig þegar þess er þegar getið í spurningunni sjálfri eða eigi (mögulega) ekki við eins og í spurningunni um nafnið á SOF Óðni/Odinn.
„Þetta er kannski ekki gott fyrir aðrar spurningar, sem eru alveg málefnalegar, þegar fólk þarf að hlaða þessu svona inn en þá virðist tilgangurinn vera annar en að fá skýr svör,“ segir hann.
Hann líkir þessu við þingflokk Pírata sem var ólatur við að senda fyrirspurnir við hin ýmsu mál.
„Sjálfstæðismenn eru orðnir hinir nýju Píratar.“
Árið 2020 sendi þingmaður Sjálfstæðismanna fyrirspurn til ráðherra sem sneri sérstaklega að kostnað við að svara fyrirspurnir og fjölda fyrirspurna frá Pírötum. Fengust þau svör að ekki væri haldið sérstaklega utan um tíma starfsmanna við að svara fyrirspurnum né heildarkostnað.
Nefndin orðin að „stimpilpúða“
Guðlaugur Þór sjálfur tekur ekki undir þessa gagnrýni nefndarformannsins, heldur segir hann að þetta sé nú orðið eina leiðin til að fá svör við ýmsum spurningum er varða fjárlagafrumvarpið.
„Upplýsingagjöf ráðuneytanna og ríkisstjórnarinnar gagnvart fjárlaganefnd er í skötulíki og vinnan í fjárlaganefnd hefur verið frá þessu kjörtímabili þannig að þetta er svona stimpilpúði,“ segir Guðlaugur.
Hann segir ýmislegt vanta í kynningar á fjárlagafrumvarpinu og að ómögulegt sé að komast til botns í því í frumvarpinu sjálfu hvað nákvæmlega felist í tilteknum liðum. Nefnir hann í því samhengi varnartengd útgjöld og sjúkraskatt. Oft gangi einnig illa að fá nægileg svör frá gestum á fundum nefndarinnar.
„Ég og minnihlutinn höfum lagt mikla vinnu í undirbúning fyrir þessi fjárlög, tekið saman hvað hefur verið í gangi og svo snýr þetta líka að vissulega einhverjum tæknilegum atriðum sem er mikilvægt að fá til þess að ná heildarmyndinni.“
Guðlaugur, sem var í fjárlaganefnd frá 2013 til 2016, segir að breyting hafi orðið á vinnubrögðum á Alþingi sem geri honum ekki lengur kleift að óska eftir slíkum gögnum.
„Það var hér áður þegar vinnubrögð voru þannig að maður gat spurt bara beint án þess að fara fyrst í fjárlaganefndina. Þá sendirðu bara beint á ráðuneytin og fékkst svör, en það er ekki lengur. Nú þarft þú að fara með allt í gegnum fjárlaganefndina og út á þær spurningarnar.“
Hann segir sumar fyrirspurnir meðal annars byggja á ýmsum ábendingum sem minnihlutanum hafi borist. „Við höfum reynt að grafa eins og við getum í þeim upplýsingum sem við höfum og jú, jú, við notum nýjustu tækni og ég held að það sé ekki hægt að ásaka okkur um það,“ bætir hann við.
Þvertekur fyrir Píratabrag
Spurður hvort hann sé með þessu ekki að leggja talsverða vinnu á herðar ráðuneytisstarfsmönnum og hvort það kynni að tefja fyrir afgreiðslu frumvarpsins í nefndinni að bíða svara eftir öllum þessum þrjú hundruð fyrirspurnum svarar Guðlaugur:
„Árið er 2026 og við erum löngu farnir úr ritvélunum. Við höfum nú Íslendingar, sem betur fer, lagt mikla áherslu á stafræna þróun. Þannig að það er mjög auðvelt að kalla eftir þessum upplýsingum. Það tekur ekki marga daga,“ segir hann. Heldur taki það ekki nema „nokkrar klukkustundir“ að fletta upp þessum gögnum.
Guðlaugur þvertekur fyrir það að nokkur Píratabragur sé á þessu vinnulagi.
„Nei, ef þú menn skoða fyrirspurnir Pírata þá var það með allt öðrum hætti. Og sumt af því var þannig að þú hefðir gúgglað það sem spurt var út í. Ég er ekkert í því,“ svarar hann.
„Ég er bara að biðja um það sem ég get ekki fundið með öðrum hætti. Ég hef engan áhuga á því að senda margar spurningar ef ég hef aðgang að öllum þessum upplýsingum.“