Bankinn, sem heitir Ueno Bank, hefur fryst sparnað milljóna íbúa Paragvæ og í kjölfarið hafa fjölmargir mótmælt á götum landsins. Samkvæmt Reuters hefur tæpur helmingur þjóðarinnar, eða um þrjár milljónir af 6,5 milljónum íbúa, ekki aðgang að sparifé sínu eða reikningum.
Fall Ueno Bank hafði fyrir leitt til afsagnar seðlabankastjóra Paragvæ og þess að átta yfirmenn bankans hafa verið handteknir.
Peña, sem er einn af bandamönnum Donalds Trump í Suður-Ameríku, átti þar til í fyrra hluta í Ueno Bank og hefur verið sakaður um að misnota almannafé og að reyna að hylma yfir upplýsingar tengdar falli bankans.
Enginn greiddi atkvæði gegn ákæru
Í dag greiddu 78 þingmenn atkvæði með því að ákæra Peña fyrir embættisbrot og þar með þingmenn úr hans eigin flokki. Enginn þingmaður greiddi atkvæði gegn tillögunni, samkvæmt frétt AP-fréttaveitunnar. Mótmælin hafa staðið yfir í þrjá daga.
Ákæran myndi við hefðbundnar kringumstæður næst fara til öldungadeildar þingsins, þar sem tveir þriðju þingmanna þyrftu að greiða atkvæði með sakfellingu og þá yrði forsetinn fjarlægður úr embætti.
Það mun ekki gerast, vegna þess að á meðan þingmenn voru að ræða hana á þingi í dag, birti forsetinn myndband á X þar sem hann sagðist ætla að segja af sér. Peña sagði það nauðsynlegt til að tryggja stöðugleika, frið í samfélaginu og heillindi lýðræðislegra stofnana Paragvæ.
Þá baðst hann afsökunar á því að hafa brugðist fólki og sagðist aldrei hafa ætlað að svíkja traust neins.
Einnig var lögð fram tillaga um að ákæra Pedro Alliana varaforseta fyrir embættisbrot en hún var ekki samþykkt. Hann mun líklega sverja embættiseið í kvöld og ætti að sitja út kjörtímabilið, sem lýkur í ágúst 2028.
Þingmenn munu velja nýjan varaforseta.
Stækkaði hratt og viðvaranir hunsaðar
Bankinn hefur á nokkrum árum stækkað gífurlega. Margir hafa á undanförnum dögum spurt sig hvernig þetta var leyft þar sem viðvarnir um meinta grunsamlega lánastarfsemi hafa reglulega stungið upp kollinum.
Ueno Bank fékk starfsleyfi árið 2023 og stækkaði gífurlega hratt. Eins og áður segir var tæpur helmingur fullorðinna íbúa Paragvæ í viðskiptum við bankanna og í stjórnartíð Peña og Colorado-flokksins hefur opinberu fé verið dælt í hann. Þar á meðal eru lífeyrissjóðir opinberra starfsmanna.
Peña skipaði einnig Carloso Carvallo, sem var forstjóri fjármálafyrirtækisins sem varð Ueno Bank árið 2023, seðlabankastjóra. Hann hefur nú sagt af sér.
AP-fréttaveitan segir að í júní hafi eftirlitsaðilar innan Seðlabankans varað við starfsháttum bankans. Samkvæmt fréttaflutningi þarlendra miðla höfðu forsvarsmenn bankans lánað tengdum aðilum fúlgur fjár, umfram þær upphæðir sem leyfðar eru samkvæmt lögum og án nægilegrar tryggingar.
Peña er sagður hafa hunsað þessar viðvaranir og í síðasta mánuði varði hann opinberlega starfshætti bankans og eftirlit Seðlabankans gagnvart bankanum. Forsetinn staðhæfði að áhyggjur fólks væru vegna áróðursherferðar.
Spilaborgin féll svo saman á mánudaginn. Þá komust eftirlitsaðilar að því að lánveitingar bankans til tengdra aðila voru mjög illa skráðar og að útgjöld hefðu ranglega verið skilgreind sem eigur.
Þegar búið var að leiðrétta bókhaldið kom í ljós að bankinn átti minna en helming af þeim peningum sem hann hefði þurft að eiga samkvæmt lögum, miðað við stærð lánasafns bankans. Seðlabankinn lagði hald á Ueno Bank og var starfsemi hans stöðvuð.