Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag
Stefnt er að arðrgreiðslum til eigenda fasteignafélagsins sem leigir meðal annars húsnæði til hjúkrunarheimila og leikskóla, eftir að leigan hækkaði 3,1% umfram verðlag.
Fasteignafélagið Heimar stefnir á auknar arðgreiðslur til hluthafa eftir að hafa aukið leigutekjur sínar umfram verðbólgu á fyrstu níu mánuðum ársins 2026.
Heimar fá 42 prósent af tekjum sínum frá hinu opinbera og skráðum félögum. Leigutekjur félagsins jukust um 12,2 prósent á milli ára. Til viðbótar hífir matsbreyting á eignum upp hagnað félagsins. Alls er hagnaðurinn 46,5 prósentum hærri fyrstu mánuði 2026 en á sama tímabili í fyrra, eða 5,2 milljarðar króna fyrir tekjuskatt.
Vegna góðrar afkomu hefur stjórn Heima tekið „stefnumarkandi ákvörðun,“ segir í kynningu félagsins eftir lokun markaða í dag. Þannig var samþykkt „ný arðgreiðslustefna sem byggir á traustum undirliggjandi rekstri og skýrri fjárfestingastefnu“.
„Stefnt er að því að ráðstafa árlega fjárhæð sem nemur að lágmarki 60% af handbæru fé frá rekstri til hluthafa,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, í yfirlýsingu vegna uppgjörsins. „Stjórn horfir í auknum mæli til arðgreiðslna umfram endurkaup. Áherslubreytingin endurspeglar …