Þetta kemur fram í greiningu velferðarsviðs á fjárhagsaðstoð á árunum 2016 til 2025 sem kynnt var í velferðarráði í gær. Hún var unnin að beiðni endurskoðunarnefndar borgarinnar.
Mánuðirnir þurfi ekki að vera samfelldir
Hópurinn sem fékk aðstoð lengst var með greiðslur í samtals 109 til 120 mánuði af þeim 120 sem tímabilið nær yfir. Í greiningunni er tekið fram að mánuðir með aðstoð séu lagðir saman og þurfi ekki að hafa verið samfelldir.
Alls fengu 11.631 einstaklingur framfærsluaðstoð einhvern tímann á áratugnum. Um 71 prósent þeirra, 8.285 manns, fengu aðstoð í samtals tólf mánuði eða skemur. Þá fengu 570 einstaklingar greiðslur í 49 mánuði eða fleiri.
Kanna á aðstæður eftir þrjá mánuði
Samkvæmt reglum borgarinnar um fjárhagsaðstoð á sérstaklega að kanna aðstæður fólks sem hefur fengið aðstoð lengur en þrjá mánuði. Samhliða á að veita félagslega ráðgjöf og gera einstaklingsáætlun í samráði við viðkomandi.
Reglurnar kveða einnig á um að kanna eigi til þrautar rétt umsækjenda til annarra greiðslna, meðal annars úr almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum og lífeyrissjóðum.