Svörin leyndu ekki á sér. Gulur og bleikur eru í uppáhaldi en ekki grár eða steinngrár sem einkennir íslenska byggingarlist og bílaflotan hér á landi. Hér fyrir neðan má sjá þáttinn þar sem Steinunn ásamt öðrum afneitar þeim 50 skuggum af gráu sem settur svip sinn á líf Íslendinga.
Umræðan um skort á fjölbreytileika og grámyglu á Íslandi hefst á mínútu 5.43. Í þættinum er farið um víðan völl. Til dæmis er snert á því hvernig er kaupmaðurinn á horninu hefur verið að deyja drottni sínum, gífurlega einsleitan bílaflota Íslendinga og hvernig litir og skrítin eða sérkennileg hönnun hefur verið á afturfótunum.
Í lok þáttarins er óvæntur glaðningur þar sem óperusöngkona minnir okkur á alla þá liti sem við eigum.