Þrír dauðadæmdir fangar voru teknir af lífi í Bandaríkjunum í gær, einn í Flórída, annar í Alabama og sá þriðji í Indiana.Slíkt er afar sjaldgæft en þetta er í annað sinn á þremur mánuðum sem þrjár aftökur fara fram á einum degi í landinu. Á sama tíma hefur Gawin Newson, ríkisstjóri Kaliforníu, boðað áform um að milda hundruð dauðadóma sem þykir undirstrika þann djúpstæða ágreining sem ríkir um dauðarefsingar í Bandaríkjunum.
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn