Garpur Elísabetarson og dóttir hans báru bæði vitni fyrr í vikunni þar sem þau greindu frá meintu umsáturseinelti af hálfu Írisar Helgu.
Sögðu þau frá áhrifum sem málið hafði haft á þeirra líf en Garpur sagðist finna fyrir félagsfælni í fyrsta skipti í lífinu og þá þurfti dóttir hans að hætta í vinnu sinni í Smáralind af ótta við að Íris myndi birtast þar.
Þau voru einnig viðstödd fjórða dag aðalmeðferðarinnar sem fór fram í dag. Þar bar mágkona Garps vitni en hún sendi lögreglunni tölvupóst þann 7. október síðastliðinn og vildi láta vita af því að fölsuð gögn hefðu verið lögð fram í málinu.
„Ég myndi aldrei gera það“
Þar var hún að tala um ummæli sem hún vildi meina að átt hefði verið við.
„Garpur sagði við mig þegar hann var búinn að fá málsgögnin að á einni blaðsíðu væri færsla eftir mig og undir það komment sem ég skrifaði aldrei,“ sagði konan í dómssal í dag.
Sagðist hún hafa skrifað færslu og skrifað ummæli undir þar sem stóð „ég held ég sé búin að laga það“ og vísaði þar til þess að hún hefði breytt stillingum svo hægt væri að skrifa ummæli undir færsluna.
Á myndum sem voru í gögnum lögreglu og Garpur bar undir hana hafði ummælunum verið breytt og þar staðið meðal annars að hún hefði beðið dóttur Írsar um að drepa sig.
„Ég myndi aldrei gera það,“ sagði konan.
Skilur ekki hvernig svona getur gerst
Sækjandi í málinu spurði hana hvernig henni hefði liðið að sjá að lögregla hefði haft gögn, sem hún segir að séu fölsuð, í sínum fórum.
„Mér leið mjög illa og ég er búin að vera mjög kvíðin og í uppnámi. Ég skil ekki hvernig það getur gerst að fölsuð gögn gagnvart mér geti verið gefin út opinberlega.“
Sagði hún jafnframt að augljóst væri að átt hefði verið við meint skjáskot, letrið væri stórt og algjörlega á skjön við hin ummælin.
Dóttir Írisar Helgu hafi tjáð skólastjóra um hluti sem hún hafi þurft að gera
Þá báru tveir starfsmenn barnaverndar vitni fyrir dómi í dag. Í máli annars þeirra kemur fram að starfsmaðurinn hafi meðal annars rætt við dóttur Írisar Helgu sem þegar hefur borið vitni.
Sagði starfsmaðurinn að dóttirin hefði tjáð skólastjóra um atburði sem hefði þurft að gera að beiðni foreldris, meðal annars að sprauta sírópi í bréfalúgur fólks.
„Hún greindi ekki frá þessu við mig heldur aðstoðarskólastjóra sem hringdi í mig og greindi frá,“ en þess ber að geta að við skýrslutökur hjá lögreglu í nóvember 2022 neitaði dóttirin að hafa sprautað sírópi í bréfalúgur hjá fólki. Hið sama gerði hún í vitnisburði sínum fyrir dómi.
Helga Vala Helgadóttir, verjandi Írisar Helgu, spurði starfsmenn félagsþjónustu sem báru vitni í dag hvort þeir hafi tekið á móti tilkynningum um að lögregla hafi farið inn á heimili þar sem börn eru. Vísaði hún þar í atvik sem kom fram í vitnisburði dóttur Írisar Helgu um að lögregla hefði verið kölluð til þar sem maður hefði ráðist inn á heimili þeirra og hótað þeim lífláti.
Sagðist annar starfsmaðurinn ekki hafa verið viðstaddur neinar lögregluaðgerðir. Aðspurð hvort hún teldi að lögregla ætti að koma að málum þegar lögregla færi inn á heimili þar sem börn væru, sagðist hún telja að rétt væri að starfsmaður félagsþjónustu væri kallaður til, til þess að tryggja öryggi barna.
Skýrslutökum fyrir dómi er nú lokið í málinu og lýkur aðalmeðferð með málflutningi sækjanda og verjanda í málinu á þriðjudag.