Það er aldrei skemmtilegt að skilja, sérstaklega þegar deilt er um skiptingu eigna. Að meginreglu er eignum skipt í helminga eftir svokallaðri helmingaskiptareglu en í undantekningatilvikum má víkja frá henni. Maður nokkur taldi sig eiga rétt til slíkrar undanþágu því það yrði bersýnilega ósanngjarnt gagnvart honum að byggja á helmingaskiptareglu hvað varðaði fasteignir sem hann hafði keypt fyrir slysabætur. Landsréttur tók þó ekki undir með manninum.
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga