Einar Logi Pétursson hefur birt umdeild myndskeið úr tveimur svínabúum Stjörnugríss þar sem meðal annars mátti sjá dauð svín og með áverka.
Sjá einnig: Birtir myndband úr innbrotinu hjá Störnugrís
Forsvarsmenn Stjörnugríss segja myndskeiðin gefa villandi mynd af aðbúnaði dýranna og hafa sömuleiðis bent á að ástand dýranna sem sjáist á upptökunum megi rekja til fyrra innbrotsins, þegar Einar Logi hleypti svínum lausum úr stíum sínum. Einar Logi hafnar þeirri skýringu og segir myndböndin tekin upp áður en hann hleypti svínunum út.
Gyltur gangi með fleiri grísi en þær geti alið
„Þetta er náttúrulega bara sláandi myndefni og mjög sorglegt að sjá dýrin en á sama tíma kemur sumt þarna sem að þarna sést á þessum myndum ekki á óvart. Um er að ræða verksmiðjubúskap með dýr,“ segir Linda Karen Gunnarsdóttir formaður Dýraverndarsambands Íslands.
Í svínahaldi sé mikil áhersla lögð á hraða framleiðslu og lögð sé áhersla á að dýrin stækki og þyngist hratt og að got hverrar gyltu séu eins stór og hægt er. Gyltur séu því að eignast fleiri grísi en þær geta alið og hluti þeirra fæðist því dáinn. Linda Karen segir það sláandi að sjá dauða grísi.
„Í rauninni eru gylturnar ekki með nógu marga spena til að sinna þeim og þær eru að ganga með fleiri grísi en eðlilegt er fyrir þær. Sem þýðir þá það að hluti af grísunum fæðist annaðhvort dánir eða þá þeir eru bara veikburða þegar þeir fæðast og ef þeir komast ekki að spena þá verður þeim bara kalt og þeir deyja,“ segir Linda Karen.
Linda Karen var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum hér að neðan.
Áherslan þurfi að breytast í svínahaldi og auka þurfi áherslu á velferð dýranna. Leggja þurfi áherslu á að gyltur eignist afkvæmi sem þær geti alið. Í myndefninu sjáist svín sem eigi að vera komin í lausagöngu en í þröngum gotbásum. Reglugerð frá 2015 kveði á um lausagöngu gyltna og að gotstíur séu stærri.
„Þarna er svona spurning hvort það eigi eftir að uppfylla ákvæði þessarar reglugerðar,“ segir Linda Karen.
Greinilega sé ástæða fyrir því að fjölmiðlum sé meinaður aðgangur
Linda Karen segir almenning eiga skilið gegnsæi og upplýsingar um aðbúnað dýranna.
„Við eigum að fá upplýsingar um aðbúnað dýra og fá myndir. Það er allt lokað, fjölmiðlar mega ekki fara inn á þessi bú. Það er ástæða fyrir því greinilega.“
En er hægt að álykta út frá þessu myndskeiði að lög eða reglur hafi verið brotnar þarna hjá Stjörnugrís?
„Það sjást legusár þarna og mjög alvarlegt sár á grís, sem Matvælastofnun vill reyndar rannsaka sérstaklega hvort það hafi verið í tengslum við innbrotið. Þannig að það er náttúrulega mjög sláandi.“
Sjá einnig: Aðbúnaður svína í myndbandi verði rannsakaður
„En málið er það að það er líka þekkt að grísir í stíum nagi hvorn annan út af því að þeir eru svo leiðir og vissulega sést brot á reglugerðinni þarna. Dýrin eru ekki með undirburð. Þau eiga að vera með til dæmis aðgang að hálmi eða svipuðu efni út af því að þau hafa svo mikla þörf fyrir að róta.“
„Þeim líður bara ofsalega illa þannig að þau fara og naga hvort annað.
„Svínabændur eiga að fara að lögum“
Þá hafi svínabændur fengið undanþágu frá Matvælastofnun og er með henni heimilt að klippa hala af ódeyfðum nokkurra daga gömlum grísum.
„Þeir eru enn þá með þessa undanþágu, sem er náttúrulega bara grafalvarlegt. Dýraverndarsamband Íslands vill náttúrulega minna á það að allir eru jafnir gagnvart lögum og svínabændur eiga að fara að lögum. Þeir eiga ekki að fá þessar undanþágur.“
Myndefnið varpi ljósi á slæman aðbúnað dýranna. Til að mynda séu níutíu prósent svína á Íslandi deyfð með gasi áður en þau eru aflífuð. Það valdi sýrumyndun í öndunarfærum þeirra og dýrin þjáist. Ekki sé aðbúnaðurinn slíkur á öllum svínabúum landsins en Linda Karen segir:
„Engu að síður þá eignast dýrin mörg afkvæmi og rosalega mikið álag er á þeim. Það er lítið pláss hjá þeim, það er verið að klippa halana af grísunum ódeyft og þeir eru verkjaðir í þessum halaendum mögulega alla ævi. Og svo náttúrulega aflífunin. Hún er líka eitthvað sem þarf að skoða.“
Skaði málstað dýraverndunar
Hvað finnst þér um verknaðinn sjálfan, það er að segja innbrotin sjálf, og áhrifin sem það hefur haft á dýrin?
„Það er náttúrulega alveg hörmulegt. Það var sagt þarna að dýr hefðu dáið og dýr slasast og það er náttúrulega eitthvað sem er óviðunandi og skaðar bara málstað dýraverndar. Það er alveg þannig.
En þessar myndir sýna hins vegar að það er pottur brotinn í þessum iðnaði sem virkilega verður að setja fótinn niður og fara að breyta.“
„Segjum NEI við grísakjöti þessi jólin“
Aldís Amah Hamilton, formaður Grænkerasambands Íslands og leikkona, stakk niður penna í tilefni birtingar myndbandsins og segir fólk ekki þurfa að vera grænkerar til þess að taka afstöðu.
„Það þarf ekki að vera grænkeri til að mótmæla óréttlæti sem þessu. Það má taka afstöðu. Það má breyta mataræði að öllu eða einhverju leyti. Það má mótmæla með veskinu,“ skrifar hún í pistli í Facebook-hópnum Vegan Ísland.
Hún hvetur fólk til að velja annað en hamborgarhrygginn um jólin.
„Þau sem vilja ekki að heimurinn sé svona, að Ísland sé svona, gerum eitthvað! Sýnum hugrekki og segjum NEI við grísakjöti þessi jólin, þó það fari fyrir brjóstið á einhverjum. Veljum dýralausa réttinn á hlaðborðinu. Prófum eitthvað nýtt í hátíðarmatinn. Bragðlaukarnir stjórna okkur ekki.
Notum frjálsa viljann okkar og réttinn okkar til að fylgja hjartanu, ekki hefðinni.“
Að lokum þakkar hún Einari Loga fyrir hugrekkið og sendir þeim styrk „sem standa svona framarlega í baráttunni og gefa þannig kröfu okkar hinna um velferð dýra vængi.“