Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í þrettánda skipti í veislusalnum Grósku. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Íslandsstofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa Lóninu.
Veitt voru verðlaun í þremur flokkum, vöru, stað og verki, og þrjár tilnefningar í hverjum þeirra. Þar að auki voru veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlaun Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.
Vara árins: Leiftur
Þrjár vörur voru tilnefndar sem vara ársins: fellistóllinn Backflip, bátalína Leiftur og glerlampasafnið Mystic Garden.
Hlutskarpastur var Leiftur, björgunarbátur sem er hannaður af Páli Einarssyni fyrir Rafnar þar sem íslensk bátahefð, tæknileg nýsköpun og reynsla sjómanna mætast í heildstæðri hönnun hraðskreiðra báta fyrir krefjandi aðstæður.
„Með byltingarkenndri ÖK-skrokkhönnun dregur Leiftur úr höggum og álagi á fólk og búnað í erfiðum sjó, eykur stöðugleika og stjórnhæfni og stuðlar að auknu öryggi við sjósókn og björgunarstörf. Í hönnuninni sameinast íslensk verkþekking, tæknileg útsjónarsemi og formfegurð þar sem hver lína þjónar tilgangi,“ segir í lýsingu á Leiftri.
Leiftur hefur sannað gildi sitt við raunverulegar aðstæður, þróast í þrettán útfærslur og verið framleiddur í sjö löndum.
Staður ársins: Frakkastígur 1
Þrír staðir voru tilnefndar sem staður ársins: viðbyggingin Óskaland við samnefndan leikskóla í Hveragerði, Baugur Bjólfs sem er hringlaga útsýnispallur á Bæjarbrún sem gnæfir 650 metra yfir Seyðisfirði og íbúðar- og atvinnuhúsnæðið Frakkastígur 1.
Frakkastígur 1 hafði vinninginn en húsið er hannað af s.ap arkitektum þar sem „nýsköpun, sjálfbærni og vandaður arkitektúr mætast í framsæknu tilraunaverkefni í hringrásarhönnun“.
„Með því að nýta byggingarefni sem þegar eru til staðar og láta þau móta hönnunina frá upphafi hefur tekist að skapa byggingu með einstakan karakter og sterka tengingu við umhverfi sitt. Vegrið af þjóðvegum, gler úr Smáratorgsturninum og steinar úr grunni hússins öðlast nýtt líf og verða órjúfanlegur hluti af arkitektúrnum. Hreinar línur, fjölbreytt efnisval og úthugsuð smáatriði skapa fallega og heildstæða byggingu þar sem fortíð og framtíð mætast,“ segir í lýsingu á Frakkastígi 1.
Verk ársins: Sketching Bathing in Iceland
Þrjú verk voru tilnefnd sem verk ársins: Vitrum Iceland sem spannar rannsóknir, tilraunir, hönnun, framleiðslu og sýningu, Sketching Bathing in Iceland sem er bók og sýning um sundlaugarmenningu Íslendinga og malbikunarherferðin Hola! fyrir Colas.
Sigurvegarinn í ár er Sketching Bathing in Iceland eftir Rán Flygenring. Verkið fjallar um sundlaugarmenningu Íslendinga, var gefið út í samnefndri bók og birtist í sýningu og baðteiknismiðjum í þremur sundlaugum í Reykjavík.
„Í heildstæðu verki Ránar Flygenring, sem samanstendur af teikningum, frásögnum, sýningum í þremur sundlaugum og samnefndri bók, er kafað ofan í þjóðlega hefð sem skipar sérstakan sess í daglegu lífi Íslendinga og hefur hlotið viðurkenningu UNESCO sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns. Með sínu einstaka myndmáli, næmni og húmor fangar Rán andrúmsloft sundlauganna og dregur fram mikilvægi þeirra sem samkomustað þar sem kynslóðir mætast og samfélagsleg tengsl myndast,“ segir í lýsingu á verkinu.
Sketching Bathing in Iceland sýni hvernig myndlist, rannsóknir og frásagnarlist geta sameinasta í áhrifaríku verki sem varðveiti dýrmætan menningararf og opni um leið fyrir nýja sýn á hið hversdagslega.
Heiðursverðlaun til Eyjólfs Pálssonar
Eyjólfur Pálsson, húsgagna- og innanhússhönnuður og stofnandi Epal, hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands 2026 fyrir ómetanlegt framlag sitt til íslenskrar hönnunar og áratuga langa baráttu fyrir framgengi hennar, sýnileika og viðurkenningu.
„Í rúma hálfa öld hefur Eyjólfur verið einn ötulasti talsmaður íslenskrar hönnunar og átt veigamikinn þátt í að skapa henni þann sess sem hún skipar í samfélaginu í dag. Með stofnun Epal árið 1975 lagði hann grunn að mikilvægum vettvangi þar sem íslenskir hönnuðir hafa fengið tækifæri til að þróa hugmyndir sínar, koma verkum í framleiðslu og ná til almennings jafnt hér heima sem erlendi,“ segir um Eyjólf.
„Með elju, framsýni og óbilandi trú á gildi góðrar hönnunar hefur Eyjólfur byggt brýr milli hönnuða, framleiðenda og samfélagsins og stuðlað að auknum skilningi í mikilvægi hönnunar og þeirri verðmætasköpun sem í henni felst. Áhrif hans ná langt út fyrir starfsemi Epal og arfleifð hans endurspeglast í öflugu hönnunarsamfélagi, nýjum tækifærum og kynslóðum hönnuða sem hann hefur stutt og rutt brautina fyrir.“
Ævistarf Eyjólfs Pálssonar sé einstakur vitnisburður um hvernig hugsjón, frumkvæði og staðfesta eins manns geti haft varanleg áhrif á þróun íslenskrar hönnunar.
Besta fjárfesting í hönnun til Auroru
Aurora velgerðasjóður hlaut viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands 2026 fyrir hönnunar- og þróunarverkefnið Sweet Salone, þar sem íslensk hönnun og handverkshefðir Sierra Leone mætast í skapandi samstarfi sem stuðlar að atvinnusköpun, verðmætasköpun og sjálfbærri þróun.
„Frá árinu 2017 hefur verkefnið styrkt stöðu handverkafólks með miðlun þekkingar, vöruþróun og aðgengi að nýjum mörkuðum, um leið og dýrmætar hefðir og staðbundin verkþekking fá nýtt líf. Sweet Salone er til fyrirmyndar um hvernig framsýn fjárfesting í hönnun getur byggt brýr milli ólíkra samfélaga, skapað varanleg tækifæri og haft víðtæk félagsleg og efnahagsleg áhrif langt út fyrir einstakar vörur,“ segir um sjóðinn.