Það kann að minna á einræðisríki að ráðherra sé sýndur í guðatölu. Og helgimyndadýrkun er heldur ekki leyfð undir lúterskri trú þjóðkirkjunnar.
Engu að síður hangir nú mynd af Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra og formanni Flokks fólksins, uppi á vegg í kaffistofu í Grunnskólanum í Stykkishólmi, GSS, þar sem hún er máluð eins og íkóni.
Hér er þó ekki um syndsamlega skurðgoðadýrkun að ræða, heldur einfaldlega grín sem slegið hefur rækilega í gegn meðal kennara í skólanum.
Grámyglulegt IKEA-málverk ekki kennarastofunni sæmandi
Egill Örn P. Hjaltalín myndmenntakennari er listamðurinn á bak við verkið. Hann rekur söguna á bak við myndina í samtali við Vísi.
„Þetta var þannig að það var svona IKEA-málverk sem hékk uppi af einhverju grámyglulegu landslagi og [kennurunum] fannst þetta svo niðurdrepandi og spurðu hvort við gætum ekki gert eitthvað sem mætti hengja upp í staðinn,“ útskýrir myndmenntakennarinn.
Fyrst hafi hann hafist handa við að mála landslagsmálverk en ekki komist langt í þeim efnum.
Píluspjald „of nastí“
Það hafi síðan verið um það leyti sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðildarviðræður við Evrópusambandið stóð yfir þegar hann heyrði samstarfsfélaga sinn bölva áformum Ingu um tölustafakvarða í sand og ösku.
„Þá fékk ég flugu í hausinn,“ segir Egill, sem hafi þá hafist handa við að skissa upp mynd af Ingu og stóran hring utan um hana.
„Upprunalega átti þetta reyndar pínuspjald handa henni [samstarfskonunni], en mér fannst það bara of nastí,“ tekur Egill fram.
Hann hafi sýnt öðrum samstarfsfélaga sínum drögin og hann stungið upp á þeirri lausn að teikna menntamálaráðherrann sem eins konar dýrling að kaþólskum sið.
Hringurinn, sem átti í upphafi að vera skotskífa, varð því að geislabaugi.
Skólastjórinn hló sig úr stólnum
Þegar málverkið var tilbúið kom að því að færa það úr myndmenntarstofunni upp á kennarastofu. Við það neyddist Egill til að ganga fram hjá skrifstofu skólastjórnenda og vildi þá svo til að skólastjórnendurnir allir höfðu verið þar saman, þar á meðal skólastjórinn, aðstoðarskólastjórinn og deildarstjóri stoðþjónustu.
„Þannig að ég sýndi þeim málverkið og spurði: „Var ekki þetta sem þið voruð að tala um?“,“ segir Egill og hlær við.
„Og skólastjórinn sprakk svo svakalega úr hlátri að hún datt úr stólnum.“
Síðan hafi þau farið með málverkið inn á kaffistofuna, sest í hring og beðið eftir því að kennarar gengju inn.
„Það var alveg frábært að fylgjast með viðbrögðum fólks,“ segir Egill og tekur fram að kennarar hafi ýmist hlegið, hváð eða tekið andköf.
„Þetta var í raun pínu grín,“ segir hann.
Átta er minna en níu
Egill kveðst hafa í upphafi ætlað að taka myndina niður eftir nokkra daga. „En þessi mynd sló svo svakalega í gegn að skólastjórinn bannaði mér að taka hana niður.“
Skólastjórinn hafi jafnvel stungið upp, þó væntanlega í gríni, á því að setja upp altari og kerti við málverkið.
Blaðamaður hjó eftir því að tölukvarðinn á málverkinu næði ekki hærra en að átta. Egill útskýrir að hann hafi ekki gefið þeim smáatriðum mikinn gaum þegar hann málaði verkið enda hafi það verið málað á tveimur dögum og upphaflega sem grín
„En eins og Inga segir: Átta er minna en níu og níu er minna en tíu,“ bætir hann við að lokum.