Sprengjuhótun barst Keflavíkurflugvelli í tölvupósti í dag. Lögregla mat hana ótrúverðuga. Hótun með sama hætti barst í síðasta mánuði að sögn upplýsingafulltrúa Isavia.
„Ég hef þær upplýsingar að það hafi borist sprengjuhótun í tölvupósti til okkar í almennt pósthólf. Það var tilkynnt til lögreglu og það var niðurstaða lögreglu að hótunin var metin ótrúverðug,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúa Isavia.
Hótun barst einnig í síðasta mánuði. „Þetta er svipað og hótun sem barst með sama hætti til okkar í síðasta mánuði, sem einnig var metin ótrúverðug og engin viðbrögð.“
Guðjón segir ekki óalgengt að hótanir sem þessar berist til flugvalla og annarra opinberra aðila.
„Það gerist hjá okkur eins og á flugvöllum annars staðar í heiminum.“
Hann segist ekki geta fullyrt hvort hótunin tengist öðrum sprengjuhótunum sem hafa borist flugfélögum í Evrópu í dag.
„Hvort þetta tengist því sem hefur verð sagt frá í fréttum í dag í Evrópu hef ég svo sem ekki upplýsingar um en þetta kom til okkar í dag.“