Sósíaldemókratinn Nithya Ramann hafði betur í baráttunni um embætti borgarstjóra Los Angeles og sigraði sitjandi borgarstjóra Karen Bass.
Breska ríkisútvarpið segir að sigur Ramann hafi komið á óvart, en hún var lengi talin hafa litla möguleika á að sigra demókratann Bass, sem er reynslumikil stjórnmálakona sem hefur setið á Bandaríkjaþingi og aldrei tapað kosningabaráttu.
Í kosningabaráttunni lagði Ramann áherslu á breytingar. Hún vill draga úr heimilisleysi, fjölga íbúðum, koma í veg fyrir frekari niðurskurð á störfum í Hollywood og verja íbúa fyrir aðgerðum yfirvalda í innflytjendamálum.
Ramann er oft líkt við borgarstjóra New York-borgar, sósíaldemókratann Zohran Mamdani. Með sigri Ramann verður því tveimur stærstu borgum Bandaríkjanna stjórnað af sósíaldemókrötum.