Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands en reikna má með suðvestan 3 til 8 metrum á sekúndu en 8 til 13 metrum á sekúndu á norðvestanverðu landinu og við suðausturströndina. Á morgun bætir svo í vind en hlýnar og fer hiti mest í 12 stig á austanverðulandinu um og upp úr hádegi.
Þá er útlit fyrir kólnandi veður frá og með sunnudeginum en með því fylgir slydda og síðan él víða um land og svo frystir um allt land í næstu viku með tilheyrandi snjókomu.
Veðurhorfur um allt land næstu daga.
Á laugardag: Vaxandi suðvestanátt, 8-15 m/s síðdegis. Víða rigning, en þurrt að kalla norðaustan- og austanlands. Hiti 5 til 10 stig.
Á sunnudag: Minnkandi suðvestanátt og víða rigning, þó síst austanlands. Dregur úr úrkomu síðdegis og dálítil slydda norðanlands undir kvöld. Kólnandi veður.
Á mánudag: Fremur hæg austlæg eða breytileg átt. Rigning eða slydda á sunnanverðu landinu, en sums staðar dálítil snjókoma norðanlands. Hiti 1 til 6 stig sunnan heiða, en annars nálægt frostmarki.
Á þriðjudag: Vestan- og norðvestanátt og él, en yfirleitt þurrt sunnanlands. Frost víða 0 til 5 stig, en hiti að 5 stigum syðst yfir daginn.
Á miðvikudag og fimmtudag: Ákveðin norðanátt með snjókomu, en þurrt sunnan heiða. Frost um allt land.