Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
Foreldrar írskrar stúlku sem lést í bílslysi á Íslandi í lok sumars eru í senn þakklát Íslandi og sorgmædd yfir að hún lést langt fyrir aldur fram. Þau eiga þó erfitt með að fallast á að hún hafi látist í slysi, þar sem vísbendingar eru um að ekið hafi verið á yfir 200 kílómetra hraða í banaslysi dóttur þeirra.
Hannah Jane Large kom til Íslands af tveimur ástæðum. Í sumarfríi á Spáni árið 2025 varð hún ástfangin af ungum íslenskum pilti. Mánuði eftir að þau hittust fyrst heimsótti hún hann til Íslands og hreifst þá af landi og þjóð. Hún hét því að flytja til Íslands árið sem hún yrði átján ára og hefja þar nýtt líf.
Hin ástæðan var að henni hafði aldrei liðið vel í heimalandi sínu, Írlandi. Þar glímdi hún við vanlíðan og heilsuvanda og þurfti oft að leggjast inn á sjúkrahús á æskuárunum. Á Íslandi leið henni betur og virtist loks heilsuhraust. Hún fann lífsgleðina á ný og, varð ástfangin. Hannah öðlaðist aukið hugrekki og stefndi á nám við Háskóla Íslands. Foreldrar hennar, Samantha og Gregory Large, áttu erfitt með að trúa breytingunni á dóttur sinni. Á Írlandi hafði hún átt erfitt, en á Íslandi var hún orðin ævintýragjörn, félagslynd og virtist óttalaus.
…