Ástæða þess að nöfn þeirra ber á góma er Íransstríðið miðað við umfjöllun miðlanna. Það eigi sérstaklega við um Hegseth en Trump sem og J.D Vance varaforseti hafa sagt að stríðið hafi átt mikinn þátt í ósigri Repúblikana sem töpuðu þingsætum í ríkjum sem hingað til hafa þótt helrauð líkt og Texas og Kansas.
Einn þingmaður Repúblikana sem nú hefur misst þingsæti sitt er sagður hafa viðrað þá skoðun sína að fulltrúadeild þingsins ætti að kjósa um að brottvísa Hegseth úr embætti (e. impeach) vegna mistaka hans. Varnarmálaráðherrann hefur birt myndband á samfélagsmiðlinum X vegna þessa þar sem hann segist sæta árásum vegna velgengni sinnar og að það muni ekki virka. Orðrómur hefur verið uppi um að Hegseth sjái fyrir sér forsetaframboð þó sérfræðingar vestanhafs segja líkurnar á að það gangi upp litlar. Hann hefur einnig verið orðaður við þingframboð í öldungadeildina í Tennessee.
Á meðan hefur utanríkisráðherrann Rubio sagt í viðtali við New York Times að hann sé ekki að íhuga stöðu sína. Rubio hefur verið margnefndur sem mögulegur arftaki Trump og oft talað um að hann og varaforsetinn Vance séu líklegir til að berjast um titil forsetaframbjóðanda Repúblikana. Hann segist elska vinnuna sína og hlæja að orðríminum.
Trump er sagður hafa rætt málið við ABC News og þá sérstaklega stöðu Hegseth. Hann segist hafa fengið símtöl um Hegseth en að hann ætli sér að halda honum í embætti. Þá segir hann Hegseth hafa staðið sig vel í embætti og benti hann á verk hans og nefndi handtöku Nicolás Maduro forseta Venesúela sem og Íransstríðið. Aðrir miðlar hafi greint frá því að Trump líti til annarra starfsmanna til að taka á sig sökina vegna stríðsins sem enst hefur í níu mánuði en átti að endast í nokkra daga. Þeirra á meðal sé starfsmannastjórinn hans hershöfðinginn Dan Caine sem og yfirmaður njósnamála Brad Cooper.