Í gegnum tíðina hefur grjót hrunið við Holtsnúp undir Eyjafjöllum og yfir veginn sem er við rætur fjallsins. Banaslys varð á svæðinu í mars í fyrra þar sem stórt grjót féll úr hlíðum fjallsins og á bíl sem var að keyra um veginn. Erlend kona var úrskurðuð látin á vettvangi. Í sumar voru settar upp hrunvarnir til að koma í veg fyrir að slíkt gerðist aftur.
Varnirnar máttu sín þó lítils gagnvart tíu tonna hnullungnum sem féll þar í gær, en í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að við hönnunina hafi verið miðað við steina á bilinu þrjú til fjögur tonn.
Ingveldur Anna Jónsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og íbúi á svæðinu, segir íbúa gríðarlega áhyggjufulla.
„Fólk er hugsi hvað varðar skólabíla og annað. Það sækja margir vinnu á Hvolsvöll og þetta er svakalegt ástand. Þarna þaut tíu tonna steinn í gegnum garð og yfir veginn. Það munaði mjög mjóu að hann hefði lent á rútu. Þetta er mjög hættulegt og við viljum sjá veginn færðan eða einhverjar úrbætur á. Þetta er ekki hægt,“ segir Ingveldur.
Varnirnar veiti falskt öryggi.
„Hann greip vissulega nokkra steina sem féllu úr fjallinu, sem er jákvætt, en þarna fór tíu tonna steinn eins og byssukúla í gegnum garðinn. Ef það hefði verið myrkur hefði maður ekki séð steininn og einfaldlega klesst á hann,“ segir Ingveldur.