Popparinn Aron Can, rapparinn Herra hnetusmjör, dansarinn Rúrik Gíslason og hafnfirsku poppbræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson skipa sveit Ísgæjanna. Þeim til halds og trausts er Sandra Barilli, í hlutverki umboðsmannsins Mollýar, en þar að auki fara Salóme Gunnarsdóttir, Sólmundur Hólm, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Jay Khan og Livia Matthes með leik í myndinni.
Leikstjórn myndarinnar er í höndum Atlavíkur-þremenninganna Hannesar Þórs Halldórssonar, Hannesar Arasonar og Allans Sigurðssonar. Handritið skrifar Hannes Þór ásamt Sólmundi Hólm Sólmundarsyni.
Loksins fá Iceguys að upplifa drauminn: að hita upp fyrir Backstreet Boys á Bandaríkjatúr þeirra. Þegar komið er til stóru Ameríku reynist það ekki alveg satt. Þeir hafa skráð sig í raunveruleikaþáttinn Barátta strákasveitanna og keppa þar við níu aðrar sveitir um að fá að hita upp fyrir sveitina. Spurningin er: Á íslensk strákasveit séns í stórlaxana úti í heimi?
Iceguys: The Movie var frumsýnd hérlendis þann 30. október síðastliðinn og er sýnd í Sambíóunum, Smárabíói, Laugarásbíói og Bíó Paradís.
Innra með þér eru tveir úlfar
Þegar maður fer í bíó er auðvelt að láta fordóma og fyrirfram mótaðar skoðanir sínar lita áhorfið, svo ekki sé minnst á skapið sem maður er í hverju sinni. Upplifunin getur mótast af ótal þáttum eins og bíófélögunum sem maður fer með, stemmingunni í salnum og jafnvel sætunum sem maður situr í. Vont skap getur auðveldlega skemmt bíómynd, alveg eins og góð stemming getur eflt upplifunina.
Ef þú ert kominn með upp í kok af því að sjá Iceguys á hverju horni, Rúrik í endalausum auglýsingum fyrir Íslandsbanka og heyra tónlist hinna fjögurra í sífelldri spilun í útvarpinu þá geturðu sennilega sleppt því að sjá kvikmyndina. Skoðanir þínar á Ísgæjunum munu ekki breytast við áhorfið því þetta er í grófum dráttum sama gamla formúlan.
Ef þú ferð með opinn hug, æðrulaus og tilbúinn fyrir fjölskyldumynd í anda Algjörs Sveppa með nóg af aulahúmor, dassi af kjánahrolli og nokkrum flottum hasarsenum, þá er ekki ólíklegt að þú gangir sáttur úr bíósalnum.
Innra með hverjum manni, sérstaklega gagnrýnandanum, eru tveir úlfar sem takast stöðugt á: fýlupúkinn og stemmingsmaðurinn. Fýlupúkinn er gagnrýninn á meðan stemmingsmaðurinn nýtur augnabliksins og þeir munu takast á við að gagnrýna Iceguys: The Movie saman.
Langþráður draumur rætist
Iceguys eru forvitnilegt fyrirbæri, í senn skáldskapur og raunveruleg hljómsveit. Annars vegar strákahljómsveit sköpuð fyrir sjónvarpsþætti þar sem meðlimirnir leika ýktar og breyskar útgáfur af sjálfum sér og hins vegar ein vinsælasta hljómsveit landsins sem fyllir hallir af syngjandi börnum. Samhliða þessu hefur Iceguys orðið að heljarinnar vörumerki sem prýðir klæðnað, ís og ýmiss konar varning miðaðan að börnum.
Kvikmyndin kemur í kjölfar þriggja sjónvarpssería en ekki er nauðsynlegt að hafa séð þær til að njóta hennar. Fyrir nýgræðinga er farið á hundavaði gegnum nokkur augnablik úr seríunum í upphafskreditlista myndarinnar. Sagan hefst þegar Iceguys koma með Mollý út á Keflavíkurflugvöll á leið sinni til Bandaríkjanna þar sem sveitin ætlar að hita upp fyrir Backstreet Boys.
Fýlupúki
Inngangskaflinn er fulllangur en samt innihaldslítill og minnir frekar á kynningarefni heldur en sjálfa kvikmyndina. Áhorfendur fylgjast með hverju skrefi af ferðalagi hópsins þar til hann kemur til Bandaríkjanna og við tekur stutt samklipp af sveitinni spígspora um götur stórborgarinnar í Iceguys-jökkunum sínum. Dálítill tónlistarmyndbandsfílingur.
Stemmingsmaður
Iceguys mæta á svæðið þar sem framleiðandinn Aníta (Salóme), brottfluttur Íslendingur sem hefur búið lengi í Bandaríkjunum, tekur á móti þeim. Það er samt eitthvað bogið við móttökurnar. Á daginn kemur að þeir höfðu ekki fengið boð um að hita upp fyrir Backstreet Boys heldur að taka þátt í strákasveitakeppninni Barátta strákasveitanna (e. Battle of the Boybands) þar sem sigurvegarinn fær að hita upp fyrir sveitina.
Erlendu sveitirnar eru skemmtilegar steríótýpur en áhorfendur fá reyndar lítið að vita um mótherjana nema þýsku höfuðandstæðingana í Tema 5ünf (sem er víst raunveruleg þýsk strákasveit). Leiðtogi þeirra er hrokagikkurinn Jau (Khan) sem hæðist að Íslendingunum með þurru þýsku gríni. Allur fyrsti kaflinn er í raun upptaktur að skemmtilegri vendingu sem ég neyðist til að spilla:
Keppnin fer fram á hinu ómótstæðilega og exótíska... Íslandi og strákarnir þurfa því að fljúga beint aftur heim. Langur aðdragandi fyrir einfalt grín sem virkar hins vegar frábærlega.
Fýlupúki
Strákarnir snúa aftur heim beygðir og fúlir yfir því að þurfa að keppa í glötuðum raunveruleikaþætti og eru keyrðir í rútu með hinum strákasveitunum í skíðaskálann í Hveradölum. Fullmikill hluti kvikmyndarinnar fer fram á ferðalagi milli staða þar sem keppendur og áhorfendur fá íslenska náttúru beint í æð.
Aðeins of oft leið manni eins og kvikmyndagerðarmennirnir væru undir innblástri frá Inspired by Iceland með drónaskotum af íslenskri náttúru, hverum og fossum. Fyrst myndin er gerð fyrir íslenskan markað skilur maður ekki alveg þessa áherslu. Um leið er þetta vannýtt tækifæri til að hæðast að landkynningarbrag íslenskra kvikmynda.
Stemmingsmaður
Ísgæjarnir þurfa ekki aðeins að glíma við hinar sveitirnar heldur líka slæman móral innan hópsins. Rúrik sem er vanur raunveruleikaþáttakeppni er gíraður á meðan hinir fjórir eru fullir vonleysis. Þá flækir málin að Rúrik finnst hann ekki metinn að verðleikum sínum innan sveitarinnar hvað lagasmíðar vaðar, Herra hnetusmjör blindast af eigin metnaðargirni og Jónssynirnir eru enn að keppast sín á milli um að vera aðalmaðurinn.
Mennirnir fimm hafa tekið miklum framförum í leiklist í gegnum seríurnar þrjár og eru greinilega farnir að þekkja mörk sín og styrkleika í gríninu. Þannig tekst að selja manni ýmislegt grín sem hljómar ekkert mjög fyndið á blaði með góðri tilfinningu fyrir húmor, leikstjórn og leik. Gott dæmi um slíkt grín er yfirgengilegur kæfisvefn Rúriks sem fer langt með að ganga fram af sveitinni.
Fýlupúki
Öll raunveruleikakeppnin er heldur sjoppuleg og nánast leyst með einu samklippi þar sem hvert bandið á fætur öðru dettur út. Útfærslan er letileg og þrautirnar vannýttar til að skapa kergju eða spennu. Áhorfendur fá aldrei að sjá sveitina í almennilegum erfiðleikum, þótt þeir eigi að vera í brasi gengur allt smurt fyrir sig.
Eina raunverulega þrautin sem áhorfendur sjá er tónlistarmyndbandakeppni þar sem sýnd eru brot úr tveimur tónlistarmyndböndum, „7-9-13“ sem Iceguys gáfu út í sumar og „Dynamit“ með Team 5ünf en það virðist fyrst og fremst hugsað til að gefa Sunnevu Einars einnar mínútu kameó. Aðeins meiri metnaður og beittara grín hefði verið þegið þar. Miðað við að þetta er tónlistarmynd er sömuleiðis heldur lítið af eftirminnilegum lögum og tónlistaratriðum í henni.
Aulagrín og sterkur lokahnykkur
Snögg afgreiðslan á hinum sveitunum er skiljanleg því keppnin er fyrst og fremst milli mislukkuðu Íslendinganna og ofjarlanna frá Þýskalandi. Þegar úrslitasveitirnar tvær liggja fyrir færist meira fútt í leikinn og skakkaföll skekja báða hópa.
Stemmingsmaður
Íslendingarnir glíma við óbærilegan kæfisvefn Rúriks og Þjóðverjarnir brenna sig á íslensku hrauni í óborganlegri senu. Maður getur ímyndað sér að íslenskir krakkar og margir foreldrar veltist um af hlátri yfir endurteknu kæfisvefnsgríninu. Grínið hjá Iceguys hefur þó alltaf verið best þegar þeir eru á grensunni og ganga aðeins yfir strikið sem þeir gera einmitt með hraungríninu og fleiri bröndurum tengdu því.
Fýlupúki
Sumt grínið verður þó að viðurkennast að verður dálítið endurtekningasamt. Sömuleiðis á maður dálítið erfitt með að verða spenntur fyrir útkomunni því maður fær aldrei á tilfinninguna að allt sé undir, að keppnin sé raunverulega upp á líf og dauða. Þar vantar aðeins upp á dramatískan leik og uppbyggingu handritsins.
Auðvitað er ekki allt sem sýnist, það reynast vera brögð í tafli og þá hrekkur hasarinn í gang. Ráðabruggið endar með svikum ákveðins manns en viðkomandi karakter er samt ekki alveg búinn að vinna fyrir því þannig fléttan verður pínu ótrúverðug. Gömul trix úr fyrri seríum eru svo endurnýtt, enn einu sinni endar einn karakteranna læstur inni í lokuðu rými og í lokin fáum við hinn akademíska bílaeltingaleik sem hefur verið í hverri einustu seríu.
Stemmingsmaður
Hasarinn er hins vegar feikilega góður, sérstaklega af því að það tekst fullkomlega að skipta framvindunni í tvo jafnspennandi þræði og má hrósa góðri leikstjórn og klippingu. Styrkur leikhópsins, sérstaklega aukapersóna, kemur sömuleiðis bersýnilega í ljós þar.
Ólafía Hrönn snýr aftur úr fyrstu seríunni og er algjör senuþjófur sem hún sjálf í hlutverki leiðsögumanns, Sóli Hólm er fyndinn sem dularfulli og göldrótti húsvörðurinn Örvar töfrar og Salóme Gunnarsdóttir er æðisleg í hlutverki astmaveiks illmennis sem er enn að jafna sig á áfalli í æsku. Erlendu leikararnir Livia Matthes og Jay Khan eru sömuleiðis ágæt í sínum takmörkuðu rullum.
Öll von virðist úti þegar Ísgæjarnir eru bornir þungum sökum. En þá tekur við lokahnykkurinn sem endar á bíótöfrum: æðisgengnum dansi Rúriks með rjóma íslenskra áhættuleikara, bókstaflegum töfrum Arons Can og einu lokalagi Ísgæjanna sem er að vísu dálítið andklímatískt eftir það sem á undan hefur gengið.
Fýlupúki
Strákarnir láta þó ekki staðar numið að hasarnum loknum því áhorfendum er drekkt í algjörri væmnissúpu í lokin, fyrst þar sem Frikki Dór brýtur fjórða vegginn og þakkar áhorfendum fyrir og svo með yfirgengilega væmnum samræðum strákanna um vináttu. Maður kynni að halda að hér væri vinsæl strákasveit að kveðja eftir áratugi en ekki þriggja ára starf.
Kvikmyndagerðarmennirnir lærðu sömuleiðis ranga lexíu úr Hringadróttinssögu Peters Jackson. Undir lok myndar bætist við ný og ný lokasena þar til þeir félagar enda loks á byrjunarreit, fimmmenningarnir segja skilið við Iceguys og snúa aftur til fyrri starfa.
Niðurstaða
Iceguys: The Movie er beint framhald af því sem á undan kom, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Sagan er einföld og á köflum heldur barnaleg en það er allt í lagi, þetta er fyrst og síðast kvikmynd fyrir börn.
Fýlupúkar verða ekki sannfærðir enda er þetta ekkert meistaraverk og viss endurtekning á sömu formúlunni. Hægt er að setja út á ójafna framvinduna, senur sem virka á mann sem uppfylliefni og fullmikla væmni undir rest.
Stemmingsmenn munu þó geta skemmt sér yfir aulagríni, nokkrum yfirgengilega fyndnum bröndurum og frábærum lokahnykk með bílaeltingaleik, slagsmálum og töfrum. Gagnrýnandi gerði einmitt það með góðum vini, nachosi og stóru gosi.
Iceguys: The Movie verður sennilega aldrei Með allt á hreinu vorra daga líkt og leikstjórinn Hannes Þór vonaðist til en hér er samt á ferðinni hörkufín fjölskyldumynd sem dregur fólk í bíó.